Síða 1 af 1

Dana 60/70 Hásingar

Posted: 06.feb 2010, 10:45
frá JonHrafn
Sælir.

Við erum að spá í að kaupa okkur 2500ram cummins og hirða vélina og parta restina. Hann er með dana 60 að framan og 70 að aftan. Þar sem ég er ekkert inn í þessu ameríska dóti langaði mig að athuga hvort það væri einhver eftirspurn eftir svona hásingum og hvað maður gæti hugsanlega selt þær á.

Einnig hvort það væri einhver séns að selja v10 magnum vélina sem er í bílnum okkar, eða hvort við þyrftum að borga með henni bensínpening hehe.

Re: Dana 60/70 Hásingar

Posted: 06.feb 2010, 12:39
frá Almar Mar
Væri allveg til í að skoða V10 mótorinn. Er með 68árg af Dodge Power wagon í uppgerð og vantar eitthvað sniðugt í húddið á honum.
er ekki skiptingin líka?

Re: Dana 60/70 Hásingar

Posted: 06.feb 2010, 13:05
frá JonHrafn
Skiptingin myndi ekki fylgja með þar sem cumminsin er skiptingalaus. Annars er vélin árg 96 og ekin 85þús. Rosalega skemmtileg vél en ekki jafn gaman fóðra hana :þ

Re: Dana 60/70 Hásingar

Posted: 06.feb 2010, 14:28
frá Maggi
Sæll

Mig vantar Dana 60 framhásingu ef hún fæst á skynsamlegu verði.
SKjóttu á mig verðhugmynd í magnus hjá velvit.is

Einnig hvoru megin er kúlan? og væntanlega orginal hlutföll.

kv
Maggi

Re: Dana 60/70 Hásingar

Posted: 14.feb 2010, 14:45
frá Kristinn
Ertu með eitthvað verð á vélinni... og veistu hvort sé hægt að nota 727 skiptingu aftan á hana.. Kv Kristinn

Re: Dana 60/70 Hásingar

Posted: 14.feb 2010, 16:16
frá JonHrafn
Ég þekki ekki hvort þessi skipting gangi. Við erum ekkert farnir að vinna í þessu þar sem cumminsin er ekki ennþá kominn í hús, engin friður fyrir þessari vinnu þessar vikurnar. Erum ekkert farnir að pæla í verðmiða á vélina en það er nýlega búið að skipta um kerti, kveikjuþræði, loftsíu, olíu og eitthvað meira snikk, hún er bara ekin 85þús og hrekkur alltaf í gang á fyrsta snúning. Ég læt vita þegar við byrjum að vinna í þessu, það er á næstu vikum.

Re: Dana 60/70 Hásingar

Posted: 14.feb 2010, 21:13
frá Stebbi
Kristinn wrote:Ertu með eitthvað verð á vélinni... og veistu hvort sé hægt að nota 727 skiptingu aftan á hana.. Kv Kristinn



47RE
A renamed second-generation A618. A heavy-duty A727 with overdrive and electrical control

Applications:

1996-2002 Dodge Ram 2500/3500 Diesel/V10

Re: Dana 60/70 Hásingar

Posted: 13.mar 2010, 18:40
frá JonHrafn
Þá er cummins raminn kominn í hús.

Ram ýtir Ford
Image

Re: Dana 60/70 Hásingar

Posted: 13.mar 2010, 20:34
frá JonHrafn
Þá er nú ýmislegt sem við ætlum að selja úr þessu, værum til í að fá bara tilboð í hásingar og v10 vélina jonhrafn@hotmail.com og s: 6941259

Re: Dana 60/70 Hásingar

Posted: 18.mar 2010, 23:45
frá skuggi
RAM Cummings Diesel gangsettur í dag eftir að hafa verið stopp í 4 ár. Eftir að búið var að laga ádreparan þá fór hann í gang á fimmta snúningi. Malar eins kettlingur, að vísu eins og stór kettlingur