Síða 2 af 3

Re: Stóra uppfærslan 24. maí

Posted: 25.jún 2015, 10:16
frá Járni
Sælir, takk fyrir að láta heyra í ykkur. Eru fleiri á sama máli?

Við erum vissulega búnir að velta þessu fyrir okkur en ákváðum að lenda þessu svona í bili vegna þess að það er engin tilbúin lausn í boði.
En við gefum í að leysa þetta ef það er almenn óánægja með þetta.

Re: Stóra uppfærslan 24. maí

Posted: 25.jún 2015, 10:24
frá svarti sambo
Ég verð að taka undir það, með gömlu útfærsluna á forsíðu. Ég kann betur við gömlu útfærsluna af forsíðu, þó svo að maður sé búinn að venjast þessu viðmóti. En er ekki hægt að vera með gamla viðmótið í nýju útfærslunni.

Re: Stóra uppfærslan 24. maí

Posted: 25.jún 2015, 10:32
frá Startarinn
Já ég kunni mun betur við þegar spjall og auglýsingar voru aðskildar.

Persónulega fór ég aldrei inn á hvert spjallborð fyrir sig nema ég leitaði að einhverju sérstöku, annars notaði ég alltaf stikuna hægra megin sem sýndi nýjustu póstana

Re: Stóra uppfærslan 24. maí

Posted: 25.jún 2015, 10:39
frá Járni
Það er ljóst að við þurfum að bæta þetta eitthvað!

Elías: Þrátt fyrir að það virðast ekki hafa verið það miklar breytingar á síðunni, þá breyttist grunnkerfið töluvert sem þýðir að við gátum ekki haldið áfram með þær sérútfærslur sem við höfðum gert á eldri síðunni. En breytingarnar þýða að vonandi getum við haldið nýju breytingunum okkar og uppfært kerfið í framtíðinni.

Við kíkjum á þetta og að venju lofum við mjög hægvirkum vinnubrögðum :P

En ég vil lika benda á "Valmynd"-ina sem er þarna ofarlega til vinstri, ef ske kynni að það hefði farið fram hjá einhverjum. Líkt og Ástmar nefnir hér að ofan, þá fer ég líka sjaldnast inn á hvern flokk heldur nota ég "Ólesna pósta", "Nýir póstar" eða "Virkar umræður" til að fylgjast með.

http://www.jeppaspjall.is/search.php?search_id=unreadposts nota ég sem bókamerki.

Re: Stóra uppfærslan 24. maí

Posted: 26.jún 2015, 21:10
frá Baikal
Sælir.
Verð að vera sammála því að gamla síðan var skemmtilegri ég er nánast hættur að nenna að lesa þetta spjall því eins og akkúrat núna þá er einn aðili búinn að fylla efstagluggan með uppfærslu á bílskúrssölunni sinni og áhugaverðar umræður horfnar inn í undirflokkana. Og ég hreynlega nenni ekki að leita þær uppi þar, þetta á eftir að deyja hægt og rólega eins og öll hin spjallborðin sem maður var/er á og eru dauð eða deyjandi.
kv.
JK

Re: Stóra uppfærslan 24. maí

Posted: 26.jún 2015, 21:20
frá Polarbear
það er óþarfi að vera svona Bjartsýnn Baikal :)

mér finnst best að nota "ólesnir póstar" fídusinn, en sakna þó aðskilnaðarins milli auglýsinga og spjallþráða á hægristikuni eins og fleiri. það var alveg sérlega notalegur fítus.

Re: Stóra uppfærslan 24. maí

Posted: 26.jún 2015, 23:24
frá svarti sambo
Ég er svo sem sammála því að gamla útfærslan var skemmtilegri, en til þess að láta þessar endalausu auglýsingar vera að þvælast fyrir mér, þá fer ég bara beint í almennt spjall dálkinn og jeppinn minn. Ef að ég er svo að leita að einhverju sérstöku, þá fer maður bara í viðkomandi dálk, og sleppir því bara að fletta ólesin innlegg. Maður verður bara að sýna smá þolimæði, á meðan að það er verið að betrumbæta þetta, en ekki gefast strax upp og fara í fýlu.

Re: Stóra uppfærslan 24. maí

Posted: 26.jún 2015, 23:44
frá Baikal
Nahhh.
Er bara að æfa mig fyrir keppni í bölsýniskasti án atrennu utanhúss sem verður haldinn á Landsmóti 50+ á Blönduósi um helgina.
Það er bara þannig að þegar maður er orðinn góðu vanur, þá eru breytingar ekki alltaf til bóta eins og dæminn sanna á 4x4 síðunni, sem er algjörlega dáinn drotni sínum eftir ótal mis slæmar uppfærslur.
kv.
JK

Re: Stóra uppfærslan 24. maí

Posted: 27.jún 2015, 18:54
frá Startarinn
Baikal wrote:Er bara að æfa mig fyrir keppni í bölsýniskasti án atrennu utanhúss sem verður haldinn á Landsmóti 50+ á Blönduósi um helgina.



BWAHAHAHAHA

Re: Stóra uppfærslan 24. maí

Posted: 29.jún 2015, 15:37
frá Ragnare
Ég fer alltaf beint inn á virkar umræður þegar ég fer inn á þetta spjall með því að klikka á jeppapjall
Jeppaspjall.JPG
Jeppaspjall.JPG (20.35 KiB) Viewed 18735 times

Þannig get ég notið alls hins skemmtilega sem rætt erum hér á síðunni.

Re: Stóra uppfærslan 24. maí

Posted: 29.jún 2015, 18:14
frá svarti sambo
Notenda leitin er öll á ensku.

Re: Stóra uppfærslan 24. maí

Posted: 29.jún 2015, 20:46
frá Járni
Það er rétt! Takk, ég snara þessu yfir á hið ylhýra við tækifæri!

Re: Stóra uppfærslan 24. maí

Posted: 11.júl 2015, 20:25
frá svarti sambo
Einhver enska hér.

PM:Send private message USER STATISTICS
Skráður:25.jan 2015, 19:37
Síðast tengdur:35 mínútum síðan
Fjöldi innleggja:19 | Search user’s posts
(0.01% af öllum innleggjum / 0.11 innlegg á dag)

Re: Stóra uppfærslan 24. maí

Posted: 12.júl 2015, 00:16
frá ellisnorra
Eitt sem ég sakna sárt, þegar maður fær einkapóst þá fær maður email til að láta mann vita. Ég fæ póstinn í símann og fæ skilaboðin um leið. Áður þá fékk maður skilaboðin í tölvupósti, þe það sem viðkomandi sendandi skrifaði. Nú fær maður bara að vita að maður eigi skilaboð og engar nohæfar upplýsingar í viðbót.
Þetta er svosem ekki stórmál, nema að tvennu leiti. Síminn minn tekur sér alveg tíma í að opna vefsíður og þegar ég logga mig inn þá "þarf" ég að lesa alla nýja pósat því annars núllast "nýjir póstar" fídusinn. Ég vill fylgjast með öllu, bæði til að vita hvað er að gerast og sem póststjóri.
Drengir mínir, er ekki hægt að fá skilaboðin í tölvupósti eins og var? :)

Re: Stóra uppfærslan 24. maí

Posted: 15.júl 2015, 11:56
frá Járni
Þýddi slatta af línum í viðbót, endilega látið vita ef þið rekið augun í fleiri atriði.

Elli: Já, ég er sammála, þetta er komið á verkefnalistann.

Re: Stóra uppfærslan 24. maí

Posted: 19.júl 2015, 17:46
frá Polarbear
er ég orðinn ruglaður eða er ýmislegt góðgæti horfið úr "Valmynd" takkanum, m.a. -Ólesnir póstar- sem ég notaði mikið (veit að það er á forsíðu líka en vill fá fleiri þræði en skitna skjáfylli í einu).

Re: Stóra uppfærslan 24. maí

Posted: 19.júl 2015, 17:48
frá Polarbear
Polarbear wrote:er ég orðinn ruglaður eða er ýmislegt góðgæti horfið úr "Valmynd" takkanum, m.a. -Ólesnir póstar- sem ég notaði mikið (veit að það er á forsíðu líka en vill fá fleiri þræði en skitna skjáfylli í einu).


það kom í ljós að ég -er- ruglaður... :) virtist ekki vera nægilega vel loggaður inn, þetta er allt komið í ljós núna.

Re: Stóra uppfærslan 24. maí

Posted: 19.júl 2015, 19:13
frá Járni
Flott, gott að vera ruglaður annað veifið! Flest góðgæti og fleira til er til staðar, en færðist mögulega á nýja staði.

Re: Stóra uppfærslan 24. maí

Posted: 20.júl 2015, 22:38
frá Járni
Talandi um netta ruglu, þá lokaði ég fyrir "Hafa samband" möguleikann hér neðst á síðunni. Alveg ótrúlega algengt að fólk misskilji þetta og noti til að svara þráðum... :)

Re: Stóra uppfærslan 24. maí

Posted: 20.júl 2015, 22:49
frá ellisnorra
Svo eru takkarnir hér fyrir neðan, "Fullbúinn ritill & Forskoða" og "Staðfesta" svolítið asnalegir. Sérstaklega "Staðfesta" gaurinn. Þar ætti að standa til dæmis "Skrá innlegg" eða "Senda innlegg á spjallborðið" eða eitthvað slíkt.

Re: Stóra uppfærslan 24. maí

Posted: 20.júl 2015, 23:11
frá Járni
Roger dodger! Endilega koma með allt svona sem þið finnið. Lofa að laga það ekki í kvöld, en bráðum! :-)

Re: Stóra uppfærslan 24. maí

Posted: 02.aug 2015, 04:19
frá grimur
Þetta er kannski eitthvað vesen á Android, en viðmótið dettur hálf út þegar ég fer inn á þræði, ekki alltaf samt, mjög random. Það er eins og forritið sem leggur viðmótið ofan á gögnin sé ekki alltaf að virka rett, samt kemur nóg til að t.d. setja inn þetta innlegg.
Kv
Grímur

Re: Stóra uppfærslan 24. maí

Posted: 02.aug 2015, 07:34
frá Járni
Sæll Grímur, þetta sama er að gerast hjá mér, á Android síma. Við erum ekki búnir að staðfesta orsökina.
Eru fleiri að lenda í þessu og eingöngu á Android?

Re: Stóra uppfærslan 24. maí

Posted: 02.aug 2015, 09:21
frá ellisnorra
Þetta er hjá mér í tölvunni líka, dettur út öll grafík. Stundum, stundum ekki. Spjallið er nánast ónothæft svona samt.
Er með Google Chrome Version 44.0.2403.125 m

Re: Stóra uppfærslan 24. maí

Posted: 02.aug 2015, 10:30
frá Baikal
Sælir.
Er að lenda í þessu líka á pc. win 8, Firefox 39.0 og líka í IE 11. Verra á Firefox virkar alls ekki og sjaldan á IE er fyrst að komast inn núna í nokkra daga og þá á IE

Re: Stóra uppfærslan 24. maí

Posted: 02.aug 2015, 11:44
frá biturk
Ég er að lenda í þessublíka, þetta er verra ef maðir er ekki innskráður sem notandi

Re: Stóra uppfærslan 24. maí

Posted: 02.aug 2015, 17:22
frá Svenni30
Sama hér. Bæði í símanum og tölvunni. Búið að vera svona í nokkra daga!

Re: Stóra uppfærslan 24. maí

Posted: 03.aug 2015, 14:26
frá jeepcj7
Það er alveg sama hvort er tölva eða sími allt í steik.

Re: Stóra uppfærslan 24. maí

Posted: 03.aug 2015, 15:20
frá Þorsteinn
Gerist líka í iphone

Re: Stóra uppfærslan 24. maí

Posted: 03.aug 2015, 16:15
frá Gunni93
Er líka í vandræðum með þetta í android hef ekki prufað pc

Re: Stóra uppfærslan 24. maí

Posted: 03.aug 2015, 16:58
frá svarti sambo
Síðan er alveg í skralli, bæði í android og í windows 8.1 og chrome. Vona að þetta komist í lag sem fyrst. :-(

Re: Stóra uppfærslan 24. maí

Posted: 03.aug 2015, 22:34
frá Svenni30
Það er allt í skralli og varla hægt að nota síðuna, Maður er hálf vængbrotinn þegar þetta er svona :)

Re: Stóra uppfærslan 24. maí

Posted: 03.aug 2015, 23:56
frá Rodeo
Makkar ekki einu sinni rétt á Mac. Þessi þráður birtist rétt en síðan almennt búin að vera meira og minna í skralli seinustu daga.

Re: Stóra uppfærslan 24. maí

Posted: 05.aug 2015, 00:13
frá Svenni30
Vill alls alls ekki vera neikvæður en mér finnst spjallið vera á niður leið eftir þessa uppfærslu, því miður

Re: Stóra uppfærslan 24. maí

Posted: 05.aug 2015, 08:10
frá jongud
Það er hægt að bjarga miklu með því að ýta á "prenthæft útlit" og þá verður viðkomandi síða læsileg.
En þetta er leiðinda böggur á síðunni.

Re: Stóra uppfærslan 24. maí

Posted: 05.aug 2015, 09:25
frá svarti sambo
Fyrir mína parta, þá finnst mér síðan alveg vera ónothæf, sem stendur og ég verð bara pirraður, þegar að ég fer inná hana.

Ein spurning:
Er ekki bara einhver vírus hjá hýsingar aðilanum, sem er að valda þessu rugli.

Re: Stóra uppfærslan 24. maí

Posted: 05.aug 2015, 16:34
frá Járni
Sælir, þetta er eitthvað tímabundið vandamál. Við eru mikið allir í ferðalagi sem stendur en höfum verið í sambandi við hýðingaraðilann ásamt því að skoða málið okkar megin. Lausnin er ekki fundin.

Mér þykir leitt að þetta sé svona en þetta verður lagað, vonandi sem fyrst.

Re: Stóra uppfærslan 24. maí

Posted: 05.aug 2015, 18:06
frá svarti sambo
Járni wrote:höfum verið í sambandi við hýðingaraðilann


Og ætlar hýðingaraðilinn að hýða hýsingaraðilann. :-)

Re: Stóra uppfærslan 24. maí

Posted: 05.aug 2015, 18:19
frá Járni
Haha, mjög gott. Ég er blússandi smámæltur á netinu!

Re: Stóra uppfærslan 24. maí

Posted: 05.aug 2015, 20:19
frá gislisveri
svarti sambo wrote:
Járni wrote:höfum verið í sambandi við hýðingaraðilann


Og ætlar hýðingaraðilinn að hýða hýsingaraðilann. :-)

Haha, góður.

Mér skilst að þetta hafi ekki með uppfærsluna að gera.
En við höldum uppi þrýstingi á kauða, þetta hlýtur að fara að lagast.
Takk fyrir þolinmæðina.
Kv frá Egilsstöðum
Gísli