Síða 1 af 1

Jeppaspjall.is

Posted: 12.feb 2010, 19:28
frá Ingaling
Eitt sem ég er að pæla í einu með þessa vefsíðu, víst að menn eru á annað borð að ræða um þessa nýju síðu. Er ekki hægt að hafa hana léttari í keyrslu fyrir Gsm símana. Td. eins og spallið inn á www.Hlad.is - www.m.mbl.is og Facebook. Bara pæling...

Mbk. Ingi Bjöss.

Re: Jeppaspjall.is

Posted: 12.feb 2010, 19:51
frá andrig
Þetta spjallborð keyrir á phpBB og það eru sjálfsagt til plugins til að gera síðuna einfaldari ef að hún spotar að vafrinn er sími.

Re: Jeppaspjall.is

Posted: 12.feb 2010, 19:53
frá Ingaling
Væri snilld. Oft sem maður er einhverstaðar út í bæ að bíða eftir einhverju er ekki leiðinlegt að kíkja á netið. Ég var samt að prufa að fara inn á þessa síðu áðan í gegnum símann og hún kom barasta ekki neitt...

Re: Jeppaspjall.is

Posted: 12.feb 2010, 20:42
frá gislisveri
Mjög góð hugmynd.
Tölvusérfræðingarnir verða að svara fyrir hversu gerlegt þetta er, en ég er hrifinn.

Re: Jeppaspjall.is

Posted: 14.feb 2010, 12:10
frá Ingaling
Eitt með útlitið á forsíðunni. Mér finnst allveg frábært að 10 nýustu póstarnir komi þarna upp og sýni þar af leiðandi virkustu umræðurnar. En væri 110% ef þetta yrði flokkað í tvo dálka og auglýsingar sér. Allar þessar upplisyngar þurfa svo sem ekki endilega að koma fram. Bara Heitið á þræðinum og svo er gott að sýna hvaða notandi skrifaði síðast.

Mbk. Ingi Bjöss.

Re: Jeppaspjall.is

Posted: 14.feb 2010, 18:17
frá gislisveri
Þú hittir naglann á höfuðið, það er einmitt verið að vinna í þessu, þ.e. að skipta upp auglýsingunum og spjallinu í tvo dálka. Okkur finnst samt nauðsynlegt að hvort tveggja komi fram í "recent topics", þetta verður því miður að vera svona kraðak þar til að leysist.
Kv.
Gísli

Re: Jeppaspjall.is

Posted: 14.feb 2010, 18:30
frá Ingaling
Æðislega glæsilegt!