Síða 1 af 1
Tímatakmörkun á póstabreytingum
Posted: 25.mar 2013, 09:26
frá gislisveri
Dömur og herrar, þetta er í ykkar höndum.
Re: Tímatakmörkun á póstabreytingum
Posted: 25.mar 2013, 09:53
frá kjartanbj
ætla moddarnir þá að taka það að sér ef þessi fáránlega hugmynd gengur í gegn að sjá um að breyta nöfnum á þráðum og edita fyrir mann þræði þegar maður þarf að breyta einhverju, sérstaklega glatað undir "bíllinn minn" að geta ekki breytt framsetningunni á þeim þráðum eftirá , segi það aftur þetta er mikil afturför ef þetta verður samþykkt og kemur til með að maður nenni minna að vera pósta á þetta spjallborð ef þetta verður eins og leiðinda spjallborðið f4x4
Re: Tímatakmörkun á póstabreytingum
Posted: 25.mar 2013, 10:20
frá Hagalín
Væri ekki sniðugast að hafa þetta bara við auglýsingar?
Re: Tímatakmörkun á póstabreytingum
Posted: 25.mar 2013, 10:43
frá gislisveri
kjartanbj wrote:ætla moddarnir þá að taka það að sér ef þessi fáránlega hugmynd gengur í gegn að sjá um að breyta nöfnum á þráðum og edita fyrir mann þræði þegar maður þarf að breyta einhverju, sérstaklega glatað undir "bíllinn minn" að geta ekki breytt framsetningunni á þeim þráðum eftirá , segi það aftur þetta er mikil afturför ef þetta verður samþykkt og kemur til með að maður nenni minna að vera pósta á þetta spjallborð ef þetta verður eins og leiðinda spjallborðið f4x4
Að sjálfsögðu tökum við það ekki að okkur, enda húðlatir með eindæmum.
En ég myndi nú ekki hafa áhyggjur, þetta er bara tilraunastarfsemi og mér sýnist að kosningin falli á þann veg að hafa þetta eins og áður var. Meirihlutinn ræður þegar því verður við komið.
Kv.
Gísli.
Re: Tímatakmörkun á póstabreytingum
Posted: 25.mar 2013, 13:45
frá StefánDal
Ánægður með þetta! Svona á að díla við hlutina í lýðræðisríki.
Er ekki hægt að setja ESB dæmið í hendurnar á ykkur líka?
Re: Tímatakmörkun á póstabreytingum
Posted: 25.mar 2013, 15:37
frá Óskar - Einfari
StefánDal wrote:Ánægður með þetta! Svona á að díla við hlutina í lýðræðisríki
Tek heilshugar undir þetta, virkilega sáttur við að það skuli vera dílað svona við hlutina!
Re: Tímatakmörkun á póstabreytingum
Posted: 25.mar 2013, 16:35
frá trooper
Flottir strákar (og stelpur þar sem við á). Lýðræðið lengi lifi, vel gert að láta almúgann ráða.
kv. Hjalti
Re: Tímatakmörkun á póstabreytingum
Posted: 25.mar 2013, 20:42
frá Lada
Sælir.
Þetta er ástæðan fyrir því að síðan gengur svona vel. Það er ekki tekið á hlutunum með valdahroka og "ég-á-þetta" hugarfari.
Klapp á bakið á aðstandendum síðunnar.
Kv.
Ásgeir
Re: Tímatakmörkun á póstabreytingum
Posted: 25.mar 2013, 23:18
frá Oskar K
Lada wrote:Sælir.
Þetta er ástæðan fyrir því að síðan gengur svona vel. Það er ekki tekið á hlutunum með valdahroka og "ég-á-þetta" hugarfari.
Klapp á bakið á aðstandendum síðunnar.
Kv.
Ásgeir
algjörlega sammála ásgeiri hér
Re: Tímatakmörkun á póstabreytingum
Posted: 01.apr 2013, 20:25
frá gislisveri
Ég þakka hrósið, en ég verð að fara að æfa mig í valdhrokanum, þetta er ómögulegt ástand.
Niðurstaðan er amk. ljós, þetta verður eins og áður var.
Súkkukveðja,
Gísli.