Síða 1 af 1
Opna linka í Nýjum tab..
Posted: 27.aug 2012, 17:06
frá kjartanbj
Er þetta einhver stilling á spjallborðinu sjálfu að alltaf þegar maður opnar linka hérna þá opnast þeir í sama glugga og jeppaspjallið
svo er maður eitthvað að skoða það kannski og X-ar svo bara út síðuna og lokar þá jeppaspjallinu óvart , væri þægilegra að linkar myndu opnast í nýjum tab
Re: Opna linka í Nýjum tab..
Posted: 27.aug 2012, 19:09
frá Magni
Þú getur haldið inni CTRL takkanum þegar þú ýtir á linkinn þá opnast hann í öðrum tap. Líka ef músin þín er með skrun hjóli þá getur þú ýtt á hjólið og færð þá linkinn í nýjan tap( það er allavega þannig á minni mús).
Re: Opna linka í Nýjum tab..
Posted: 27.aug 2012, 22:05
frá Aparass
Það er líka hægt að stilla það í phpBB að láta linka á aðrar síður opnast í nýjum glugga. Mætti alveg gera það því ég hef ekki tölu á því hvað ég hef oft slökt á glugganum sem VAR jeppaspjall.is en er orðið eitthvað sem mig langar ekkert að horfa á lengur. þá er sko of seint að velja "back"........
Re: Opna linka í Nýjum tab..
Posted: 27.aug 2012, 22:11
frá Freyr
Hægrismella á linkinn og velja "open link in new tab"
Re: Opna linka í Nýjum tab..
Posted: 27.aug 2012, 22:37
frá Aparass
Freyr wrote:Hægrismella á linkinn og velja "open link in new tab"
Það vita það alveg allir held ég. það þarf bara ekki að gera það á neinni síðu nema hér.....
Re: Opna linka í Nýjum tab..
Posted: 27.aug 2012, 23:51
frá StefánDal
Ég er alveg sammála því að þetta er frekar þreytandi. Líka að því að ég tel mig vita að þetta sé ekki mikið mál að lagfæra.
Re: Opna linka í Nýjum tab..
Posted: 28.aug 2012, 22:17
frá thor_man
Það er líka hægt að stilla þetta með flipana í vafranum sjálfum, misjafnt hvar það er nákvæmlega eftir vöfrum en aðgerðina er að finna í Valkostir (Preferences) / Flipar í Firefox og í Safari í Tabs allavega.
Re: Opna linka í Nýjum tab..
Posted: 29.aug 2012, 13:08
frá gislisveri
Við erum að athuga með að breyta þessu.
1. stýrimaður jeppaspjallsins er frekar upptekinn í skóla þessa dagana, svo ef einhver getur bent mér á hvar ég finn stillingarnar fyrir þetta í phpbb, þá væru slíkar upplýsingar vel þegnar.
Kv.
Gísli Sveri
Re: Opna linka í Nýjum tab..
Posted: 30.aug 2012, 00:16
frá Aparass
Re: Opna linka í Nýjum tab..
Posted: 16.okt 2012, 00:09
frá BragiGG
líka hægt að ýta ofaná scroll takkann á músinni og þá opnast linkurinn í nýjum tab...
Re: Opna linka í Nýjum tab..
Posted: 16.okt 2012, 19:59
frá kjartanbj
já eða bara breyta þessu ? þetta er óþolandi svona, ég er alltaf að opna linka og X'a svo bara út og þá er allt í einu jeppaspjallið lokað
Re: Opna linka í Nýjum tab..
Posted: 13.jan 2013, 23:33
frá gislisveri
Aparass wrote:https://www.phpbb.com/kb/article/links-opening-new-windows/
Ég gat nú ekki klórað mig fram úr þessu þegar ég reyndi, en er búinn að fá vilyrði um að þetta verði græjað á næstunni.
Kv.
Gísli.
Re: Opna linka í Nýjum tab..
Posted: 29.aug 2013, 00:14
frá StefánDal
Og ég beið og beið og beið....
Einhverja hluta vegna þá fer þetta alveg hrikalega í taugarnar á mér. Óþolandi að þurfa að fara til baka til þess að fara aftur á jeppaspjallið eftir að hafa ýtt á link.
Re: Opna linka í Nýjum tab..
Posted: 29.aug 2013, 08:49
frá jongud
Maður er bara orðin svo vanur að opna alla hlekki í nýjum flipa með því að hægrismella og velja að það pirrar mig ekki. Ekki hafði ég heldur hugmynd um "Ctrl-smella" eða miðjusmella trixin (takk fyrir það!)
Re: Opna linka í Nýjum tab..
Posted: 29.aug 2013, 15:35
frá Óskar - Einfari
Ég nota alltaf scroll hjólið... oftast er hægt að smella með því að ýta hjólinu niður og þá opnast tengillinn í nýjum tab. Mér finnst þetta snilldarfítur og nota þetta alltaf á allar vefsíður og linka sem ég smelli á.
Re: Opna linka í Nýjum tab..
Posted: 29.aug 2013, 17:24
frá StefánDal
Óskar - Einfari wrote:Ég nota alltaf scroll hjólið... oftast er hægt að smella með því að ýta hjólinu niður og þá opnast tengillinn í nýjum tab. Mér finnst þetta snilldarfítur og nota þetta alltaf á allar vefsíður og linka sem ég smelli á.
Ég notast við fartölvu og spjaldtölvu og þessvegna ekki með hefðbundna mús. Þetta er líka eina heimasíðan sem ég heimsæki sem er ekki með þennan fídus (ef fídus skildi kalla) og þessvegna geri ég það ósjálfrátt að smella bara á linkinn.
Þessi síða er frábær í alla staði en það eru þessir litlu hlutir sem gætu gert hana næstum fullkomna:)
Re: Opna linka í Nýjum tab..
Posted: 29.aug 2013, 22:03
frá gislisveri
Ég er sammála því að gera þetta, þetta hefst á endanum.
Re: Opna linka í Nýjum tab..
Posted: 19.nóv 2013, 08:44
frá gislisveri
Nú er loksins búið að finna lausn á þessu, endilega prófið hvort að virkar hjá ykkur.
Breytingin hefur bara áhrif á nýja hlekki.
Re: Opna linka í Nýjum tab..
Posted: 19.nóv 2013, 09:25
frá Magni
Þetta virkar, snilld :)
Re: Opna linka í Nýjum tab..
Posted: 19.nóv 2013, 16:03
frá StefánDal
Snilld! Takk kærlega :)