Gróf mismunun


Höfundur þráðar
stebbiþ
Innlegg: 304
Skráður: 26.feb 2010, 17:14
Fullt nafn: Stefán Þ. Þórsson

Gróf mismunun

Postfrá stebbiþ » 06.mar 2011, 15:00

Komið þið sælir.

Ég ætla ekki að ræða lokanir á slóðum innan þjóðgarðsins að þessu sinni, látum það aðeins liggja á milli hluta.
(Gaman væri ef einhver 4x4 félagsmaður myndi setja þetta inn á spjallið hjá 4x4, þar sem ég er ekki félagsmaður)
Mig langar að vekja athygli á öðru og öllu alvarlegra máli, að mínu mati, í reglum/lögum um þennan blessaða þjóðgarð. Máli, sem mun skemma miklu meira fyrir okkur öllum sem ferðast munu innan garðsins á eigin vegum.
Ég er að tala um þá grófu mismunun sem gerð er á milli ferðafólks. Eins og þið vitið kannski, þá mun fjölskyldu á eigin bíl verða óheimilt að reisa hefðbundið útilegutjald á miðjum öræfunum, en göngufólki er það hinsvegar heimilt. Þetta gildir einnig um pickup með camper, upphækkað fellihýsi o.s.frv. Ekki bara tjöld.
Sem sagt, allur meginþorri íslenskra ferðamanna verður skikkaður á tjaldsvæði í eigu ferðaþjónustuaðila, sem getur rukkað að vild. Þetta er langmesta svívirðan í þessum þjóðgarði og ég skil ekki hvað menn hafa rætt þetta mál lítið.

Ég er að ljúka við langt bréf sem ég ætla að senda öllum þingmönnum í umhverfisnefnd alþingis, varðandi þessa svívirðilegu mismunun sem getur ekki staðist jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar.

Einnig mun ég senda umhverfisráðherra svipað bréf, ásamt ráðuneytisstjóra umhverfisráðuneytisins.
Þegar og ef ég fæ svör þá mun ég birta þau hér á spjallinu, ef þau gefa leyfi fyrir því.


Hér kemur smá bútur úr símafundi stjórnar þjóðgarðsins, sem haldin var þann 2. Júlí 2010

http://www.vatnajokulsthjodgardur.is/me ... 020710.pdf

Þar kemur m.a. eftirfarandi fram:

Ýmsar athugasemdir

Tjöldun

(Tilvitnun hefst)
Andmælt er mismunun sem kemur fram í því að akandi gestir mega ekki tjalda til einnar nætur
utan skipulagðra tjaldsvæða. Það skerði verulega möguleika akandi gesta til að upplifa
náttúruna og ferðast með fjölskyldur. Ennfremur sé gisting á þjónustusvæðum aðeins í boði
eins ferðaþjónustuaðila sem ráði verðlagningu að vild. Ákvæðið útiloki trússferðir sem njóti
vaxandi vinsælda.

Allmargir gerðu athugasemd við það að aðeins göngufólki væri heimilt að tjalda til einnar nætur
utan skipulagðra tjaldsvæða. Þannig væri gestum þjóðgarðsins mismunað eftir ferðamáta og
gert að kaupa þjónustu þess ferðaþjónustaðila sem starfar á hverjum slíkum stað. Ákvæðið
útiloki líka trússferðir innan þjóðgarðsins (tilvitnun lýkur).

Hér kemur skýrt fram að þetta skerði verulega ferðafrelsi mitt og ég sé þar að auki skikkaður á einkarekið tjaldsvæði sem geti rukkað mig að vild! Vandamálið og brotið er þar með viðurkennt.
Á fundinum kemur einnig fram að stjórn þjóðgarðsins muni fara fram á það við Umhverfisráðuneytið að reglurnar verði rýmkaðar.

Þann 28. Febrúar síðastliðin, samþykkti Umhverfisráðherra, Stjórnunar- og verndaráætlun um Vatnajökulsþjóðgarð. Ekkert hafði breyst þar hvað varðar mismunum á milli ferðafólks þegar kom að tjöldun.

Baráttukveðja,
Stefán Þ. Þórsson




Ofsi
Innlegg: 278
Skráður: 31.jan 2010, 22:32
Fullt nafn: Jón Garðar Snæland

Re: Gróf mismunun

Postfrá Ofsi » 06.mar 2011, 18:43

Er þú ekki tíl í að skella bréfinu til umhverfisnefndar inn á spjallið
kv Ofsi


Höfundur þráðar
stebbiþ
Innlegg: 304
Skráður: 26.feb 2010, 17:14
Fullt nafn: Stefán Þ. Þórsson

Re: Gróf mismunun

Postfrá stebbiþ » 06.mar 2011, 19:02

Jú, það skal ég gera. Klára að renna yfir það eftir mat og skelli því inn hérna á jeppaspjallið í kvöld. Þú mátt svo gjarnan birta það á vef 4x4.

Kveðja, Stefán Þ.


Ofsi
Innlegg: 278
Skráður: 31.jan 2010, 22:32
Fullt nafn: Jón Garðar Snæland

Re: Gróf mismunun

Postfrá Ofsi » 06.mar 2011, 20:05

Geri það, takk

User avatar

Óskar - Einfari
Innlegg: 690
Skráður: 01.feb 2010, 08:29
Fullt nafn: Óskar Andri Víðisson
Bíltegund: Toyota
Staðsetning: Vatnsenda, Kópavogur
Hafa samband:

Re: Gróf mismunun

Postfrá Óskar - Einfari » 06.mar 2011, 21:01

gönguelítu dýrkun....... meira hef ég ekki að segja um þessa fullkomnu mismunun sem þetta er orðið....
Toyota Hilux 2007 3.0 D-4D sjálfskiptur 38" breyttur

https://www.instagram.com/oskar.andri/


joias
Innlegg: 633
Skráður: 15.feb 2010, 21:15
Fullt nafn: Jóhann Lúðvíksson

Re: Gróf mismunun

Postfrá joias » 06.mar 2011, 21:02

Vitið þið hvað það er sem 4x4 menn ætla að gera í þessu? Geta utanfélagsmenn gert eitthvað til að hjálpa til? Hvernig væri að fara með þetta fyrir mannréttindadómstól eða eitthvað álíka?
Prodject Toylett Hilux Longcap eða hvað á að kalla það...


Til baka á “Umhverfis- og hagsmunamál”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 8 gestir