Síða 1 af 1

Eru menn sáttir

Posted: 01.des 2020, 22:06
frá petrolhead
Eru ekki allir er þetta spjall lesa alsáttir við þessar hugmyndir ?

https://www.visir.is/g/20202044290d/ger ... rdi-sattur

Re: Eru menn sáttir

Posted: 02.des 2020, 06:51
frá Sævar Örn
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2020 ... for_sinni/

Guðmund­ur Ingi Guðbrands­son um­hverf­is­ráðherra benti þar á að marg­ir Íslend­ing­ar hefðu skoðað landið sitt í sum­ar og borið hefði á því að þeir hefðu farið hæg­ar um landið og þjóðgarðana en ferðamenn. Guðmund­ur sagði að það væri ein­mitt mark­miðið hvað varðaði er­lenda ferðamenn, að reyna að „tefja ferðamenn á för sinni um landið.“


Þetta er háalvarlegt mál, ef það er virkilega svo, sem ég bara hreinlega trúi ekki, að markmiðið, þó ekki væri nema eitt af topp 10 markmiðum væri að 'TEFJA FERÐAMENN' í þeim skilningi að þeir fari hægar um og njóti betur þá held ég hreinlega að þessum málaflokk séu allar bjargir bannaðar.

Ferðamenn hljóta að geta, og mega ráða ferðahraða sínum sjálfir, anskotinn hafi það :)

Re: Eru menn sáttir

Posted: 02.des 2020, 15:26
frá Axel Jóhann
Mér finnst þetta fáranlegt og ég vona innilega að það verði ekkert úr þessu!

Re: Eru menn sáttir

Posted: 03.des 2020, 20:32
frá petrolhead
Já mér finnst þetta nokkuð gerræðislegar hugmyndir....svona pent orðað því það sem mig langar að segja um þetta er ekki prenthæft

Re: Eru menn sáttir

Posted: 04.des 2020, 08:00
frá jongud
Maður er engan vegin sáttur.
Vatnajökulsþjófgarður átti að vera þetta og hitt en virðist bara vera vanfjármagnað batterý til að vinstri grænir vitleysingar með valdakomplexa geti lokað- bannað- og rukkað eftir eigin hentisemi.