utanvegaakstur

User avatar

Höfundur þráðar
Polarbear
Póststjóri
Innlegg: 874
Skráður: 31.jan 2010, 23:15
Fullt nafn: Lárus Rafn Halldórsson
Bíltegund: Toyota

utanvegaakstur

Postfrá Polarbear » 25.feb 2010, 21:43

.
Síðast breytt af Polarbear þann 26.feb 2010, 08:44, breytt 1 sinni samtals.



User avatar

Kiddi
Innlegg: 1160
Skráður: 02.feb 2010, 10:32
Fullt nafn: Kristinn Magnússon
Bíltegund: Wrangler 44"

Re: utanvegaakstur

Postfrá Kiddi » 25.feb 2010, 22:44

...
Tók út það sem ég skrifaði þar sem það hefur sennilega ekkert uppá sig að vera að æsa sig eitthvað yfir þér.

User avatar

Brjótur
Innlegg: 565
Skráður: 31.jan 2010, 23:57
Fullt nafn: helgi j. helgason

Re: utanvegaakstur

Postfrá Brjótur » 25.feb 2010, 22:59

Mikið hrikalega er ég ánægður að sjá að Lalli skrifaði sama póst hérna og á F4x4 þá get ég svarað honum hérna, sendi honum reyndar einkapóst, ég er helst á því að hann hafi af einhverjum sökum átt einstaklega slæman dag kanski frúin að gera honum lífið leitt? Ég benti honum á eins og þú Kiddi að þarna væri allt harðfrosið og bílarnir ekki að marka í og að auki þá vex þessi á örugglega í vor og þá? og að auki þá eru þeir á SLÓÐA þar sem Lallinn heldur að þeir séu í utanvegaakstri, kanski ættir þú að fá þér rúnt þarna næsta sumar, aðeins að stilla miðið Lalli Rafn áður en sprengjunum er varpað svo þú hittir nú rétt skotmark.

Kveðja Helgi

P.s. Reyndar þegar ég skoða myndina af hryggnum betur þá held ég að slóðinn liggi eftir þessum hrygg.

User avatar

Höfundur þráðar
Polarbear
Póststjóri
Innlegg: 874
Skráður: 31.jan 2010, 23:15
Fullt nafn: Lárus Rafn Halldórsson
Bíltegund: Toyota

Re: utanvegaakstur

Postfrá Polarbear » 25.feb 2010, 23:58

..
Síðast breytt af Polarbear þann 26.feb 2010, 08:44, breytt 1 sinni samtals.


arni_86
Innlegg: 94
Skráður: 03.feb 2010, 22:39
Fullt nafn: Árni Einarsson

Re: utanvegaakstur

Postfrá arni_86 » 26.feb 2010, 00:05

Get ekki skilid afhverju þarf ad vera væla yfir þessu þegar þad sést ad þad er frost í jörðu þarna.

Og svo er annad. Hverju skiptir þad máli þó ad árbakkinn hefði einhvad "skemmst". Áin grefur ju jarðvegin sjálf med tíð og tíma

En menn eiga auðvitad ad forðast utanvegarakstur og náttúruspjöll eins og hægt er.

pirradar kveðjur frá einum sem ad finnst ad fólk ætti frekar ad einbeita sér ad því ad hindra fleiri virkjanir fyrir álver sem ad skila engu fyrir þjóðfélagid.

kiddi


Fordinn
Innlegg: 377
Skráður: 03.feb 2010, 21:47
Fullt nafn: Mikkjal Agnar Þórsson

Re: utanvegaakstur

Postfrá Fordinn » 26.feb 2010, 03:06

Þetta er ágætt að við séum allir á tánum, gagnvart þessu og alveg vert að huga að hvort madur sé að gera eitthvað misjafnt. Sjálfur hef ég fengið á baukinn fyrir myndabirtingar á netinu þar sem verið var að keyra uppúr ám. Við þær aðstæður verða menn bara að fá að njóta vafans, ár breyta sér, menn jafnvel verið i vandræðum og erfitt fyrir okkur sem heima sitjum að meta hverjar aðstæður voru hverju sinni. Að keyra á frosinni jörð skemmir oft ekkert, stundum geta komið skemmdir svo að menn ættu að forðast i lengstu lög að keyra á berri jörð. það er aðallega mosinn sem er viðkvæmastur.... sandar melar og gras þola alveg akstur i frosti.

Auk þess er eg farinn að skoða myndir sem eg set á netið med það i huga hvort þær gætu gefið einhverjum ástæðu til skammast yfir, þótt myndir lýti illa út þarf ekkert ólöglegt að vera í gangi,

User avatar

Stebbi
Innlegg: 2098
Skráður: 31.jan 2010, 22:59
Fullt nafn: Stefán Stefánsson
Bíltegund: Eitthvað blátt
Staðsetning: Hafnarfjörður

Re: utanvegaakstur

Postfrá Stebbi » 26.feb 2010, 09:41

Fordinn wrote:Auk þess er eg farinn að skoða myndir sem eg set á netið med það i huga hvort þær gætu gefið einhverjum ástæðu til skammast yfir, þótt myndir lýti illa út þarf ekkert ólöglegt að vera í gangi,


Sama hér, ég til dæmis tek alltaf númerin af hjá mér þegar ég fer á fjöll og reyni helst að vera í myrkri með ljósin slökkt. Svo ef ég sé mann með myndavél þá ýminda ég mér að ég sé rokkstjarna og hann sé Papparazzi og veð beint í myndavélina. :)

Bara að muna að brosa strákar, það er nógu mikið af til öðrum hlutum í kringum okkur til að senda mann í óafturkræft þunglyndi að við þurfum að finna okkur nýja. Enda sýnist mér að Lalli hafi sofið úr sér reiðina og séð að sér í morgun klukkan 8:44.
Hilux DC 2.4 dísel úrbræddur
Jeep Grand Cherokee 4.7 Seldur
MMC Pajero 2.5TDI 38" Seldur
Ford Econoline 44"

User avatar

gislisveri
Stjórnandi
Innlegg: 1067
Skráður: 30.jan 2010, 23:08
Fullt nafn: Gísli Sverrisson
Bíltegund: Suzuki Fox
Staðsetning: Mosó
Hafa samband:

Re: utanvegaakstur

Postfrá gislisveri » 26.feb 2010, 10:01

Mönnum hlýtur að fyrirgefast það að pirrast öðru hvoru, enda er það okkur öllum hjartans mál að fá að halda áfram að jeppast.
Það er hins vegar alveg skýrt í mínum huga að þarna er ekið á freðinni jörð og afar ólíklegt að það verði nokkur ummerki eftir þetta í vor.
,,Heimilt er að aka vélknúnum ökutækjum á jöklum svo og snævi þakinni og frosinni jörð svo fremi að ekki skapist hætta á náttúruspjöllum" stendur hérna með vísan í reglugerð.

Svo er alveg ljóst að við megum passa okkur hvað við birtum því víða eru illa upplýstir ,,jeppaóvinir" sem eru tilbúnir að valda æsingi við lítilfjörlegustu tilefni.

Friðarkveðja,
Gísli

User avatar

Höfundur þráðar
Polarbear
Póststjóri
Innlegg: 874
Skráður: 31.jan 2010, 23:15
Fullt nafn: Lárus Rafn Halldórsson
Bíltegund: Toyota

Re: utanvegaakstur

Postfrá Polarbear » 26.feb 2010, 10:20

mér sýnist nú að maður þurfi ekki að vera jeppaóvinur til að valda æsingi með lítilfjörlegt tilefni :)

en jæja já. strjúkum kviðinn og elskum friðinn. það er líklega best fyrir alla.

p.s. og leyfum náttúrunni að njóta vafans og ferðumst af virðingu um landið.

User avatar

Brjótur
Innlegg: 565
Skráður: 31.jan 2010, 23:57
Fullt nafn: helgi j. helgason

Re: utanvegaakstur

Postfrá Brjótur » 26.feb 2010, 11:42

Daginn Lalli það er nú enginn með æsing ég vona allavega að þú hafir ekki lesið æsing út úr þessum pistlum, og þú segir lítilfjörlegt tilefni, það var nú ekki svo lítilfjörleg umræða sem þú skaust fram þetta var eins og æsifréttamennska af verstu gerð, en ok strjúkum kviðinn og slöppum af ;)

kveðja Helgi


Ofsi
Innlegg: 278
Skráður: 31.jan 2010, 22:32
Fullt nafn: Jón Garðar Snæland

Re: utanvegaakstur

Postfrá Ofsi » 26.feb 2010, 17:41

http://blog.eyjan.is/pallasgeir/2010/02 ... /#comments
Páll Ásgeir fer hamförum á ploggi sínu.
kv Ofsi


pardusinn
Innlegg: 66
Skráður: 01.feb 2010, 22:36
Fullt nafn: Sigurður L. Gestsson

Re: utanvegaakstur

Postfrá pardusinn » 26.feb 2010, 18:47

Nú á bara Rolling Stones aðdáandinn eftir að klæða sig í jakkann og setja upp derhúfuna. ÚÚÚFFFFFFF...........
USA með Dana 60, C-6 skiptingu og 6,2 Diesel. 44" dekk.


dabbigj
Innlegg: 157
Skráður: 01.feb 2010, 17:22
Fullt nafn: Davíð Geir Jónasson

Re: utanvegaakstur

Postfrá dabbigj » 26.feb 2010, 20:49

Menn þurfa ekki að fara lengra en uppí Esju til að sjá hvernig slæmur umgangur fólks fer með landið, svo er líka hægt að nefna Leggjabrjót þarsem að göngufólk er búið að ryðja sumstaðar 30 metra breitt svæði og murka allt líf úr mosa sem að var þar fyrir og fólk búið að reyna að stytta sér leið yfir viðkvæmt votlendi og farið illa með þann gróður sem að var þar.

Allir sem að ferðast á eða við viðkvæm svæði geta skaðað þau og held að menn þurfi að hætta þessum rifrildum og miklu frekar einbeita sér að uppbyggilegri umræðu og varðveita og auka það ferðafrelsi sem að til er í landinu.

Hvernig væri að þeir starfsmenn sem að eru á launum við að senda ferðahópum póst vikunni áður en að þeir fara í skipulagaða ferð á vegum ferðafélags sem að er nánast undantekningalaust til fyrirmyndar væru í því að stika slóðir, byggja upp gamlar vörður o.s.f. frekar en þessum endalausa sandkassaleik ?


Til baka á “Umhverfis- og hagsmunamál”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 2 gestir