Síða 1 af 1

Línu yfir sprengisand?

Posted: 11.okt 2013, 22:36
frá bergurp
Hvað finnst mönnum um línulögn yfir sprengisand, eins og nefnt hefur verið í fréttum? Með eða á móti?
kv,
Bergur Pálsson

Re: Línu yfir sprengisand?

Posted: 12.okt 2013, 10:22
frá jongud
Algerlega á móti, enda er það fyrirsláttur að það þurfi hana fyrir fiskvinnslu á austurlandi.
Það á að fara að virkja á norð-austurlandi og þá verður notuð hin nýja Kröflulína-3 fyrir bræðslurnar.

Re: Línu yfir sprengisand?

Posted: 12.okt 2013, 13:10
frá snöfli
Þetta er ill nauðsyn. Þar sem það er komið í tísku hjá sveitarfélögum að vera á móti raflínum og vegum sem liggja ekki framhjá búsapallinum. Það vilja allir rafmagn, afhendingaröryggi, sterkan gjaldmiðil og góð laun. Bara ekki raflínur, vegi, viðskipti við útlönd eða annan gjaldmiðil. Í stuttu máli sagt BULL.

Re: Línu yfir sprengisand?

Posted: 15.okt 2013, 11:00
frá jongud

Re: Línu yfir sprengisand?

Posted: 15.okt 2013, 21:22
frá bergurp
Ég er með framkvæmdum sem fyrirtæki og notendur borga, jafnvel með verði sem samsvarar því sem gerist erlendis fyrir samsvarandi en þarna held ég stærri verðmæti fari forgörðum heldur en unnið er til. Líklega sérstaklega varðandi Ódáðahraunið.

Það má kosta ansi mikið að leggja vírinn í jörð áður eða fara aðrar leiðir, á láglendi, með línuna áður en þessi aðgerð borgar sig. Við viljum framkvæmdir og þróun en þarna þarf allavega að borga vel fyrir línuna, grafna í jörð.

Ef línulögnin skiptir miklu máli þá hljóta þeir sem sækjast eftir henni að vera tilbúnir að greiða vel fyrir rafmagnið. Setjum línuna í jörðina eða veljum aðra kosti.

kv,
Bergur Pálsson

Re: Línu yfir sprengisand?

Posted: 16.okt 2013, 09:06
frá Tjakkur
Byggðarlínan er ekki of lítil fyrir "byggðirnar" en er í n.k. gíslingu af stóriðju og stórvirkjunum sem tengjast henni.
Sprengisandslínan hefur það hlutverk að tengja Þjórsárvirkjanir við Kárahnúkavirkjun.

Bendi áhugasömum á að skoða þessar skýringarmyndir.

https://www.facebook.com/photo.php?fbid ... =1&theater