Síða 1 af 1

Ert þú félagi?

Posted: 27.aug 2013, 09:04
frá jongud
Vetrarstarfið er að byrja hjá Ferðaklúbbnum 4x4 og fyrsti fundur er 2. spetember.
Einhver ávæningur hefur verið um að halda eigi kynningu á coil-over dempurum. Ef ekki á þeim fundi þá einhverntíman seinna.
Munið!
VHF-kerfið rekur sig ekki sjálft og þið styðjið illa réttindi ykkar til að ferðast um landið tuðandi einir uppi í sófa.

Re: Ert þú félagi?

Posted: 27.aug 2013, 12:56
frá Járni
Um að gera að styðja klúbbinn!

Re: Ert þú félagi?

Posted: 27.aug 2013, 13:39
frá Hjörturinn
Þetta er ekki stór peningur þetta árgjald en þessi klúbbur er forsendan fyrir því að við getum stundað þetta sport, ef það hefði ekki verið fyrir f4x4 þá mættum við ekki breyta bílum í dag!

Re: Ert þú félagi?

Posted: 27.aug 2013, 15:49
frá Óskar - Einfari
Ég fæ félagsgjaldið endurgreitt í formi afsláttar á hverju ári og stundum alveg vel rúmlega það!

Re: Ert þú félagi?

Posted: 27.aug 2013, 16:49
frá jongud
Óskar - Einfari wrote:Ég fæ félagsgjaldið endurgreitt í formi afsláttar á hverju ári og stundum alveg vel rúmlega það!

Það þarf stundum ekki nema brotið drif til að árgjaldið borgi sig í formi afslátta.

Re: Ert þú félagi?

Posted: 27.aug 2013, 18:48
frá jeepson
Ég verslaði kúplingu í patrol um daginn í AB varahlutum. Hún átti að kosta 42900 fyrir utan afslátt. En kostaði tæp 37þús með afslætti. Ég fékk 15% afslátt. Þannig að þetta borgar sig algjörlega. :)

Re: Ert þú félagi?

Posted: 29.aug 2013, 09:04
frá Hfsd037
Ég er búinn að trassa það einum of lengi að gerast f4x4 félagi, ætla að ganga frá því í vikunni :)

Re: Ert þú félagi?

Posted: 29.aug 2013, 12:23
frá einsik
Það er ekki spurning um að þetta borgi sig. 10 króna afsláttur af eldsneyti. Konan fær líka kort sem aukafélagi, ekkert auka gjald.
Afsláttur af smurningu og ýmsum varahlutum. Ég fékk tam 3500 kr afslátt af smur hjá Shell um daginn. Það er td 80 lítra tankur í LC120 sem gerir 800 kr afslátt af tankfylli. Að meðaltali tankar maður 1 til 2 í mánuði.

Mig minnir að árgjaldið sé 6 eða 8000. Maður er ekki lengi að borga það upp.

Re: Ert þú félagi?

Posted: 29.aug 2013, 13:33
frá birgthor
Mun gerast félagi strax eftir áramót :)

Re: Ert þú félagi?

Posted: 29.aug 2013, 14:33
frá vidart
Hjá mér var þetta svona:
1. Kaupa jeppa.
2. Ganga í F4x4

Re: Ert þú félagi?

Posted: 29.aug 2013, 14:54
frá Svenni30
Hjá mér var þetta

Ganga í 4x4
Kaupa jeppa

Re: Ert þú félagi?

Posted: 29.aug 2013, 19:31
frá Jóhann
Ekkert skilyrði að eiga jeppa til að gerast félagi

Re: Ert þú félagi?

Posted: 30.aug 2013, 17:37
frá jongud
Jóhann wrote:Ekkert skilyrði að eiga jeppa til að gerast félagi


Að sjálfsögðu ekki, þú getur verið áhugamaður um stjörnufræði án þess að eiga plánetu.

Re: Ert þú félagi?

Posted: 31.aug 2013, 12:53
frá jongud
Aðeins að "bömpa þessu", könnuninni lýkur á mánudag.

Re: Ert þú félagi?

Posted: 01.sep 2013, 13:39
frá olafur f johannsson
Ég er félagi æi Bílaklúbbi Akureyrar verið það síðan 1990 og svo er ég líka félagsmaður í F4x4 en bara nýlega svo er ég líka félagsmaður í mustang klúbbnum

Re: Ert þú félagi?

Posted: 02.sep 2013, 08:44
frá jongud
...síðasta "bömp"...