STOP

User avatar

Höfundur þráðar
ofursuzuki
Innlegg: 270
Skráður: 31.jan 2010, 15:47
Fullt nafn: Björn Ingi Óskarsson
Staðsetning: Skagaströnd
Hafa samband:

STOP

Postfrá ofursuzuki » 09.sep 2010, 09:46

Þessa vitleysu þarf að söðva og það strax.
http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/20 ... _svaedinu/
Nú á að fara að banna okkur að aka á snjó, þó að þarna sé talað um að þetta sé á viðkvæmu og afmörku svæði þá er þetta bara byrjunin og áður en við vitum af verður búið að banna snjóakstur á fleiri stöðum. Mér þætti gaman að sjá röksemdafærsluna á bak við að snjóakstur skemmi landið svo framalega að það sé einhver snjór. Held að þarna sé á ferð bæði vanþekking á akstri á snjó og hreinlega sú ætlun manna að banna helst allann akstur vélknúinna farartækja um hálendi landsins hvort sem er að sumri eða vetri. Nú þurfum við jeppafólk að láta duglega í okkur heyra því annar styttistt í það að við getum sett þessar jeppabeyglur okkar á þjóðminjasafnið fyrir komandi kynslóðir að skoða og sem minnisvarða um eitthvað sem hét ferðafrelsi.


Björn Ingi Óskarsson
_____________________________
Nissan Patrol 260 38"
Suzuki SJ 410 Pickup 38" 1986 Seldur
Suzuki Vitara 33" 1993 R.I.P
Suzuki SJ 413JX 33" 1988 Seldur

User avatar

Sævar Örn
Innlegg: 1917
Skráður: 31.jan 2010, 19:27
Fullt nafn: Sævar Örn
Bíltegund: Hilux
Staðsetning: Reykjavik
Hafa samband:

Re: STOP

Postfrá Sævar Örn » 09.sep 2010, 11:01

Heyr heyr þetta er náttúrulega bara dæmalaus vitleysa og svona þröngsýnispésa sem aldrei hafa fæti stigið út fyrir malbikið þarf að stöðva. Nóg hefur verið þrengt að okkur nú þegar og sér ekki fyrir endann á því. Því miður
Samband Íslenskra Suzukijeppaeigenda
http://sukka.is

Skúra- og ferðablogg ásamt öðrum fróðleik
http://sabi.is

User avatar

Stebbi
Innlegg: 2098
Skráður: 31.jan 2010, 22:59
Fullt nafn: Stefán Stefánsson
Bíltegund: Eitthvað blátt
Staðsetning: Hafnarfjörður

Re: STOP

Postfrá Stebbi » 09.sep 2010, 19:45

Ég held að Norðmenn séu komnir með útsendara inn í íslenska stjórnsýslu, nú skal allt banna nema það sem er sérstaklega leyft með undantekningum í reglugerð rammalaga sem styðjast við röksemdir í norskum lögum. Og menn þurfa að sækja sérstaklega um leyfi fyrir því og hafa ávallt á sér sérstakt frelsiskort stjórnvalda og uppáskrifað frá ráðuneyti.

Velkomin í Vinstra velferðarsamfélagið.
Hilux DC 2.4 dísel úrbræddur
Jeep Grand Cherokee 4.7 Seldur
MMC Pajero 2.5TDI 38" Seldur
Ford Econoline 44"


Til baka á “Umhverfis- og hagsmunamál”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 7 gestir