YS 744 Umhverfisböðull marzmánaðar


Höfundur þráðar
btg
Innlegg: 124
Skráður: 06.feb 2010, 14:00
Fullt nafn: Bjarni Þór

YS 744 Umhverfisböðull marzmánaðar

Postfrá btg » 25.mar 2012, 21:42





arni_86
Innlegg: 94
Skráður: 03.feb 2010, 22:39
Fullt nafn: Árni Einarsson

Re: YS 744 Umhverfisböðull marzmánaðar

Postfrá arni_86 » 25.mar 2012, 22:09

thetta bara MÀ ekki!

tharf ekki marga svona bjàna til thess ad gera ùtaf vid ferdafrelsid


Höfundur þráðar
btg
Innlegg: 124
Skráður: 06.feb 2010, 14:00
Fullt nafn: Bjarni Þór

Re: YS 744 Umhverfisböðull marzmánaðar

Postfrá btg » 25.mar 2012, 23:44

svopni wrote:Þetta er glæpur! En þessir ágætu göngumenn tala um okkur jeppa menn eins og við séum apaheilar og fávitar upp til hópa! Hverjir eru þá fíflin sem líta illa út?


Er þetta ekki spurning um að öll dýrin í skóginum séu vinir, og virði reglur hvors annars?

Eðlilega þykir fólki leitt að sjá upp spóluð svæði hingað og þangað, hvort sem það er göngufólk, jeppafólk eða skúringakellingar. Við þurfum ekkert að fara að munnhöggvast við einhverja hópa, myndirnar tala sínu máli finnst mér.


trooper
Innlegg: 114
Skráður: 29.mar 2010, 20:12
Fullt nafn: Hjalti Steinþórsson

Re: YS 744 Umhverfisböðull marzmánaðar

Postfrá trooper » 26.mar 2012, 13:22

Sælir.
Persónulega finnst mér skömm af hegðun eins og þessari. Ættu að vera ákvæði sem fælu það í sér að ef með óyggjandi hætti er hægt að sanna þetta á viðkomandi bifreið skuli vera hægt að dæma viðkomandi bíleiganda í eitthvað sniðugt.. Samfélagsvinnu hjá Landgræðslunni í mánuð eða eitthvað álíka.. Lánir þú bílinn til aula sem gerir svona lagað gerir þú það bara einu sinni eftir það, vænti ég...

Hjalti
Santa Fe
35" Patrol - Seldur
35" Trooper - Seldur
35" CrewCab - Seldur

User avatar

Kiddi
Innlegg: 1160
Skráður: 02.feb 2010, 10:32
Fullt nafn: Kristinn Magnússon
Bíltegund: Wrangler 44"

Re: YS 744 Umhverfisböðull marzmánaðar

Postfrá Kiddi » 26.mar 2012, 14:43

svopni wrote:Jú þetta snýst nefnileega nákvæmlega um að vera vinir. En í commentum neðan við þetta blogg þá eru göngumenn með dónaskap útí jeppaeigendur. Og þá meina ég hvern einasta mann sem á jeppa. Ég hef lent í svona fólki, það var reyndar gönguskíðafólk og ég/við á vélsleðum. Þau voru s.s að segja okkur hvað þetta væri mikið ónæði fyrir þau og að það ætti að banna þessi tæki. Voru með dónaskap við okkur. Og ég tek fram að það var allt á kafi í snjó. Sumir eru bara fífl og er ekki viðbjargandi.


Værir þú til í að benda mér á þetta því ég sé þetta ekki.

User avatar

Kiddi
Innlegg: 1160
Skráður: 02.feb 2010, 10:32
Fullt nafn: Kristinn Magnússon
Bíltegund: Wrangler 44"

Re: YS 744 Umhverfisböðull marzmánaðar

Postfrá Kiddi » 26.mar 2012, 15:17

Jæja þú um það. Myndi bara líta í eigin barm ef ég væri þú.

User avatar

Kiddi
Innlegg: 1160
Skráður: 02.feb 2010, 10:32
Fullt nafn: Kristinn Magnússon
Bíltegund: Wrangler 44"

Re: YS 744 Umhverfisböðull marzmánaðar

Postfrá Kiddi » 26.mar 2012, 15:42

Þú segir að málið snúist um að vera vinir en síðan kallarðu göngufólk og gönguskíðafólk fífl. Það er það sem ég á við. Það eru til menn sem eru jeppamenn OG göngumenn OG gönguskíðamenn... en það breytir engu að það er gjörsamlega tilgangslaust að snúa þessari umræðu upp í einhvern ímyndaðan ríg á milli jeppamanna og einhverra "annara"


dabbigj
Innlegg: 157
Skráður: 01.feb 2010, 17:22
Fullt nafn: Davíð Geir Jónasson

Re: YS 744 Umhverfisböðull marzmánaðar

Postfrá dabbigj » 26.mar 2012, 15:54

ÞEtta er ekki flókið, snýst um að sýna öðrum tilitssemi og kurteisi sama hvernig þeir eru að ferðast, mér finnst leiðinlegt að vera á gönguskíðum og það eru sleðamenn ofaní mér að bruna fram og til baka, sömuleiðis reyni ég að veita gangandi fólki svigrúm ef ég er á jeppa o.s.f.

öll dýrin í skóginum eiga að vera vinir og sýna virðingu í samskiptum sama hvort það sé útí náttúrunni eða hér á netinu.

En hestamenn eru klárlega fífl sko, held að það sé best að allir taki sig saman og leggji þá í einelti!


Bassi6
Innlegg: 36
Skráður: 11.mar 2010, 16:40
Fullt nafn: Bjarni Friðriksson
Bíltegund: Willys og Wrangler

Re: YS 744 Umhverfisböðull marzmánaðar

Postfrá Bassi6 » 26.mar 2012, 16:05

dabbigj wrote:En hestamenn eru klárlega fífl sko, held að það sé best að allir taki sig saman og leggji þá í einelti!


Sammála!!


jongunnar
Innlegg: 220
Skráður: 14.jún 2011, 21:03
Fullt nafn: Jón Gunnar Mýrdal

Re: YS 744 Umhverfisböðull marzmánaðar

Postfrá jongunnar » 26.mar 2012, 17:55

Mig langar nú mest að setja nafnið á eiganda bílsins hérna inn. En ég veit ekki hvort að ég megi gera það.
Ef það er ekki olía undir enskum bílum þá er ekki olía á þeim


Lada
Innlegg: 171
Skráður: 31.jan 2010, 23:38
Fullt nafn: Ásgeir Bjarnason
Bíltegund: Subaru Outback
Staðsetning: Reykjavík

Re: YS 744 Umhverfisböðull marzmánaðar

Postfrá Lada » 26.mar 2012, 18:11

Sælir.

Ég er nú eiginlega mest hissa á að enginn skuli vera búinn að birta nafn eigandans nú þegar, og jafnvel bera það saman við félagaskrá umhverfisverndarfélaga svo félagar gætu sameinast um að flengja kauða.
En hvernig er það, er búið að tilkynna þetta til lögreglu? Það hlýtur að þurfa að tilkynna þetta formlega.
Eru til einhverjar fleiri og ítarlegri myndir af þessum aðförum?

Kv.
Ásgeir

User avatar

Sævar Örn
Innlegg: 1917
Skráður: 31.jan 2010, 19:27
Fullt nafn: Sævar Örn
Bíltegund: Hilux
Staðsetning: Reykjavik
Hafa samband:

Re: YS 744 Umhverfisböðull marzmánaðar

Postfrá Sævar Örn » 26.mar 2012, 18:56

Skaust í forvitni minni löglegu leiðina upp á úlfarsfell í gær og sá ekkert óeðlilegt þar, auðvitað eru gömlu förin milli neðri topps og efri topps alltaf sjáanleg en engar nýlegar skemmdir að sjá, ég er kannski ekki glöggur á þetta en ég nýt náttúrunnar jafnvel og aðrir
Samband Íslenskra Suzukijeppaeigenda
http://sukka.is

Skúra- og ferðablogg ásamt öðrum fróðleik
http://sabi.is


Ofsi
Innlegg: 278
Skráður: 31.jan 2010, 22:32
Fullt nafn: Jón Garðar Snæland

Re: YS 744 Umhverfisböðull marzmánaðar

Postfrá Ofsi » 26.mar 2012, 19:53

http://www.facebook.com/#!/groups/ferdafrelsi/

Hér eru umræður um málið og nafn hins meinta geranda byrt


steinarxe
Innlegg: 195
Skráður: 09.mar 2010, 21:16
Fullt nafn: Steinar Amble Gíslason

Re: YS 744 Umhverfisböðull marzmánaðar

Postfrá steinarxe » 26.mar 2012, 21:40

hestamenn fífl? þið eruð nú meiru bjálfarnir,stundum er betra að láta lyklaborðið vera og sleppa því að staðfesta heimsku sína.

User avatar

jeepson
Innlegg: 3176
Skráður: 31.jan 2010, 16:02
Fullt nafn: Gísli J Gíslason
Bíltegund: Nissan patrol
Staðsetning: Þarna fyrir austan.

Re: YS 744 Umhverfisböðull marzmánaðar

Postfrá jeepson » 26.mar 2012, 21:40

Leiðinlegt að menn skuli ekki geta hugsað aðeins. Mér fynst altaf eins og við hinir séum sjálfkrafa dæmdir eftir þeim sem að gera svona lagað.
Kv. Gísli

Nissan Patrol 1992 6.5 detroit diesel 46" Trölli
Isuzu Trooper 2003 3.1 TDI[b]37"/b] vinnu og veiði bíllinn
Audi Q7 3.0 TDI frúar vagninn

User avatar

-Hjalti-
Innlegg: 1635
Skráður: 07.feb 2010, 21:22
Fullt nafn: Hjalti Sigurðsson

Re: YS 744 Umhverfisböðull marzmánaðar

Postfrá -Hjalti- » 26.mar 2012, 21:50

steinarxe wrote:hestamenn fífl? þið eruð nú meiru bjálfarnir,stundum er betra að láta lyklaborðið vera og sleppa því að staðfesta heimsku sína.

Ert þú orðin talsmaður hestamanna..
Toyota 44"runner
Arctic cat M8000 162"

User avatar

Freyr
Innlegg: 1704
Skráður: 01.feb 2010, 10:52
Fullt nafn: Freyr Þórsson

Re: YS 744 Umhverfisböðull marzmánaðar

Postfrá Freyr » 26.mar 2012, 21:53

Ég tók nú skotinu á hestamenn bara sem kaldhæðnis brandara en ekki raunverulegri skoðun spjallverjans..................


steinarxe
Innlegg: 195
Skráður: 09.mar 2010, 21:16
Fullt nafn: Steinar Amble Gíslason

Re: YS 744 Umhverfisböðull marzmánaðar

Postfrá steinarxe » 26.mar 2012, 21:59

nei,fyrirgefðu,á ég að hringja í formann FH og fá hann til að lýsa viðbjóði sínum á þessu ófirirkallaða heimsku commenti? er það nógu gott? btw,ef þetta var bara brandari þá skal ég bara skammast mín og halda kjafti ,þarsem mér finnst sjálfum frekar bjánalegt ef fólk fer í kerfi yfir svoleiðis.

User avatar

Járni
Stjórnandi
Innlegg: 1391
Skráður: 30.jan 2010, 22:43
Fullt nafn: Árni Björnsson
Bíltegund: Land Rover
Staðsetning: Akureyri
Hafa samband:

Re: YS 744 Umhverfisböðull marzmánaðar

Postfrá Járni » 26.mar 2012, 22:13

Jæja, leiðindamál. Þau eru yfirleitt alltaf leiðinleg.

Ég vil gjarnan minna á að spjallið er öllum opið og gefur það því landsmönnum öllum mynd af okkur jéppaáhugamönnum.
Vinsamlegast takið það til greina áður en þið smellið á "Senda" takkann að spjallið okkar hefur haft þann orðstír að hér fari ræðuhöld fram með yfirvegun.
Land Rover Defender 130 38"

User avatar

Hfsd037
Innlegg: 968
Skráður: 20.aug 2010, 08:26
Fullt nafn: Hlynur Freyr Sigurðsson
Bíltegund: Toyota Hilux 3.0

Re: YS 744 Umhverfisböðull marzmánaðar

Postfrá Hfsd037 » 26.mar 2012, 22:17

steinarxe wrote:nei,fyrirgefðu,á ég að hringja í formann FH og fá hann til að lýsa viðbjóði sínum á þessu ófirirkallaða heimsku commenti? er það nógu gott? btw,ef þetta var bara brandari þá skal ég bara skammast mín og halda kjafti ,þarsem mér finnst sjálfum frekar bjánalegt ef fólk fer í kerfi yfir svoleiðis.


Image
Toyota Hilux D/C '00 38" Í notkun
Toyota Hilux V6 X/C '94 38" seldur
Toyota Hilux V6 X/C '92 33" seldur
Chevy S-10 Single Cab '90 4.3 seldur


birgthor
Innlegg: 621
Skráður: 02.mar 2010, 22:05
Fullt nafn: Birgir

Re: YS 744 Umhverfisböðull marzmánaðar

Postfrá birgthor » 26.mar 2012, 22:19

Like fyrir Járna
Kveðja, Birgir


olei
Innlegg: 815
Skráður: 30.apr 2011, 01:41
Fullt nafn: Ólafur Eiríksson

Re: YS 744 Umhverfisböðull marzmánaðar

Postfrá olei » 26.mar 2012, 22:25

Ofsi wrote:http://www.facebook.com/#!/groups/ferdafrelsi/

Hér eru umræður um málið og nafn hins meinta geranda byrt

Ég sé að það færist sífellt í vöxt á almennum spjall og bloggvefjum að linka á umræður og myndir á facebook. Þetta er herfileg þróun því að facebook er ekki opið nema innskráðum.

Fyrsta regla í persónuvernd er: Ekki standa berrassaður á kassa á almannafæri og hrópa öll þín persónulegu málefni yfir vegfarendur.

Önnur regla í persónuvernd er: Ekki nota facebook.

User avatar

Magni
Innlegg: 474
Skráður: 11.aug 2011, 15:42
Fullt nafn: Magni Helgason
Bíltegund: Nissan Patrol

Re: YS 744 Umhverfisböðull marzmánaðar

Postfrá Magni » 26.mar 2012, 22:27

Járni wrote:Jæja, leiðindamál. Þau eru yfirleitt alltaf leiðinleg.

Ég vil gjarnan minna á að spjallið er öllum opið og gefur það því landsmönnum öllum mynd af okkur jéppaáhugamönnum.
Vinsamlegast takið það til greina áður en þið smellið á "Senda" takkann að spjallið okkar hefur haft þann orðstír að hér fari ræðuhöld fram með yfirvegun.


Sammála.
- Nissan Patrol 2008 L86 V8 44AT -

User avatar

Magni
Innlegg: 474
Skráður: 11.aug 2011, 15:42
Fullt nafn: Magni Helgason
Bíltegund: Nissan Patrol

Re: YS 744 Umhverfisböðull marzmánaðar

Postfrá Magni » 26.mar 2012, 22:32

Persónulega tók ég þessu sem gríni, svörtum húmor.. en það er ekkert sem gefur til kynna að þetta sé grín eða ekki.. ef þetta er einhver einkahúmor milli manna þá er kannski betra að sleppa því að setja þetta inn, sumir taka þessu kannski ekki sem gríni.

"En hestamenn eru klárlega fífl sko, held að það sé best að allir taki sig saman og leggji þá í einelti!"

Þetta gæti alveg stuðað jeppamanninn ef við tökum hestamenn út og setjum jeppamenn inní staðinn. Því er kannski bara betra að sleppa svona commentum:)
- Nissan Patrol 2008 L86 V8 44AT -


steinarxe
Innlegg: 195
Skráður: 09.mar 2010, 21:16
Fullt nafn: Steinar Amble Gíslason

Re: YS 744 Umhverfisböðull marzmánaðar

Postfrá steinarxe » 26.mar 2012, 22:40

Það er opið öllum já,og mér fannst það ekki merkilegt til afspurnar að svona undirbeltis högg á annan hóp fengi ekkert nema svar á borð við ''Sammála!!''Brandarinn er ekkert alltof augljós þó hann eflaust sé þarna.

User avatar

hobo
Póststjóri
Innlegg: 2490
Skráður: 31.jan 2010, 17:44
Fullt nafn: Hörður Bjarnason
Bíltegund: 1988 Ford Econoline

Re: YS 744 Umhverfisböðull marzmánaðar

Postfrá hobo » 27.mar 2012, 09:32

Ég vil nota tækifærið og hrósa öllum þeim sem hafa ekki ekið utanvega og eru meðvitaðir um afleiðingar þess.

Upphafspunkturinn er klárlega áróður í skólum og ökukennslu.
Ég t.d heyrði lítið um þessi mál áður en ég fór út í jeppadelluna og fór að liggja yfir málefnum f4x4.

Minn upphafspunktur hefur líklega verið þegar ég var á ferðalagi með foreldrum mínum um Snæfellsnes, kannski 8-9 ára. Þá blöskraði mömmu svo þegar hún sá milljón mótorhjólaför upp mosavaxna brekku, en það hefur eithvað setið í mér.


Krúsi
Innlegg: 125
Skráður: 31.jan 2010, 22:57
Fullt nafn: Markús Betúel Jósefsson

Re: YS 744 Umhverfisböðull marzmánaðar

Postfrá Krúsi » 27.mar 2012, 15:58

olei wrote:
Ofsi wrote:http://www.facebook.com/#!/groups/ferdafrelsi/

Hér eru umræður um málið og nafn hins meinta geranda byrt

Ég sé að það færist sífellt í vöxt á almennum spjall og bloggvefjum að linka á umræður og myndir á facebook. Þetta er herfileg þróun því að facebook er ekki opið nema innskráðum.

Fyrsta regla í persónuvernd er: Ekki standa berrassaður á kassa á almannafæri og hrópa öll þín persónulegu málefni yfir vegfarendur.

Önnur regla í persónuvernd er: Ekki nota facebook.


Sammála


Oskar K
Innlegg: 354
Skráður: 28.jún 2011, 00:28
Fullt nafn: Óskar Kristófer Leifsson

Re: YS 744 Umhverfisböðull marzmánaðar

Postfrá Oskar K » 27.mar 2012, 21:47

skil nú ekki alveg tilganginn í að keyra utanvega þarna uppfrá því vegirnir eða slóðarnir eru allmargir, og ég fæ alveg nóg gaman úr því að keyra þarna yfir á hefðbundnum leiðum
1992 MMC Pajero SWB

User avatar

Hr.Cummins
Innlegg: 703
Skráður: 06.jan 2013, 18:03
Fullt nafn: Viktor Agnar Guðmundsson Falk
Bíltegund: Dodge Ram 1500
Hafa samband:

Re: YS 744 Umhverfisböðull marzmánaðar

Postfrá Hr.Cummins » 12.jan 2013, 12:48

Nafnlaus sagði...
Góðan daginn gott fólk. Gunnar heiti ég og ég á þennan bíl. Mig langar að byrja á því að segja að ég er ekki stoltur af þessu og vildi ekki að svona hefði farið en ég tel mig mikinn náttúruunanda og er það ein af ástæðum þess að ég fékk mér þennan jeppa fyrir tveimur vikum, en planið var stærri ferðir en upp á Úlfarsfell :) ég er nefnilega nýlega búinn að uppgötva að ég bý á ævintýraeyju sem mig langar að upplifa betur. Þannig er það, eins og ég útskýrði fyrir Guðmundi held ég, að ég fór þarna upp í myrkri föstudagskvöldið, leiðin upp var ekkert mál en eftir að hafa verið í stutta stund þarna uppi að dást að útsýninu tók skyggni skyndilega að minnka og þykk þoka tók að leggjast yfir. Þá ákvað ég að fara að koma mér niður af hólnum en þegar kom að því að finna slóðann aftur tókst ekki betur upp en svo að ég lenti svolitlu fyrir neðan hann og festi ég bílinn í drullu. Á því augnabliki sem ég áttaði mig á því að bílinn var fastur tók ég upp símann og hringdi í 112 og lét þá vita að ég væri fastur uppi á Úlfarsfelli í blinda þoku. Þegar ljóst var að ég varð að losa mig sjálfur gerði ég það en braut stýrisenda og bjó til drullupoll í leiðinni. Þannig var það nú og eins og ég sagði þá er ég alls ekki stoltur af þessu og hef í hyggju að blanda möl saman við drulluna og gróðursetja tré á þessum reit til að bæta fyrir orðin skaða því mér þykir þessi pollur ekki flottur.
Dodge Ram 1500 Cummins Compound Turbo Diesel:
[BBD 60# Valvesprings, 4k GSK, Raptor 150GPH LP, Marine HG, Maxed Out P-Pump, No Plate, Tuned AFC, 20° Timing, Colt BIG STICK]
[Custom 4,5" Downpipe, 5" Pipe & Dual 6" Stacks]

User avatar

Hfsd037
Innlegg: 968
Skráður: 20.aug 2010, 08:26
Fullt nafn: Hlynur Freyr Sigurðsson
Bíltegund: Toyota Hilux 3.0

Re: YS 744 Umhverfisböðull marzmánaðar

Postfrá Hfsd037 » 12.jan 2013, 16:58

Hann er ekkert nafnlaus, hann heitir Gunnar
Toyota Hilux D/C '00 38" Í notkun
Toyota Hilux V6 X/C '94 38" seldur
Toyota Hilux V6 X/C '92 33" seldur
Chevy S-10 Single Cab '90 4.3 seldur

User avatar

Tómas Þröstur
Innlegg: 330
Skráður: 19.mar 2010, 10:03
Fullt nafn: Tómas Þröstur Rögnvaldsson

Re: YS 744 Umhverfisböðull marzmánaðar

Postfrá Tómas Þröstur » 14.jan 2013, 08:36

Sævar Örn wrote:Skaust í forvitni minni löglegu leiðina upp á úlfarsfell í gær og sá ekkert óeðlilegt þar, auðvitað eru gömlu förin milli neðri topps og efri topps alltaf sjáanleg en engar nýlegar skemmdir að sjá, ég er kannski ekki glöggur á þetta en ég nýt náttúrunnar jafnvel og aðrir


Ég verð bara að vera sammála þessu. Ég er í því að labba líka um fjöll eins og að keyra og gekk framhjá bílnum á Úlfarsfelli þegar hann stóð þarna á sínum tíma og tók ekki eftir neinu sérstöku umfram þá slóða sem hafa verið í tölverðan tíma á fjallinu. Bæði slóðar eftir jeppa og vegir lagðir með vinnuvélum eru á fellinu. Megnið af þessum vegum og slóðum eru mjög gamlir. En það breytir því ekki að fjallið er orðið frekar illa farið og þolir ekki bílaumferð nema þegar allt er þurrt á sumrin.


dabbigj
Innlegg: 157
Skráður: 01.feb 2010, 17:22
Fullt nafn: Davíð Geir Jónasson

Re: YS 744 Umhverfisböðull marzmánaðar

Postfrá dabbigj » 15.jan 2013, 13:56

Tómas Þröstur wrote:
Sævar Örn wrote:Skaust í forvitni minni löglegu leiðina upp á úlfarsfell í gær og sá ekkert óeðlilegt þar, auðvitað eru gömlu förin milli neðri topps og efri topps alltaf sjáanleg en engar nýlegar skemmdir að sjá, ég er kannski ekki glöggur á þetta en ég nýt náttúrunnar jafnvel og aðrir


Ég verð bara að vera sammála þessu. Ég er í því að labba líka um fjöll eins og að keyra og gekk framhjá bílnum á Úlfarsfelli þegar hann stóð þarna á sínum tíma og tók ekki eftir neinu sérstöku umfram þá slóða sem hafa verið í tölverðan tíma á fjallinu. Bæði slóðar eftir jeppa og vegir lagðir með vinnuvélum eru á fellinu. Megnið af þessum vegum og slóðum eru mjög gamlir. En það breytir því ekki að fjallið er orðið frekar illa farið og þolir ekki bílaumferð nema þegar allt er þurrt á sumrin.


eða frosið á veturnar =)


Til baka á “Umhverfis- og hagsmunamál”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 1 gestur