Sælir
Af einhverjum ástæðum á maður helling af ljósmyndum frá gömlum torfærukeppnum og bílasýningum.
Skanniði inn nokkrar myndir frá gamalli Hellu keppni svona í tilefni 50 ára afmæli torfærunar og keppninnar næstu helgi
Vonandi hafa einhverjir gaman af þessum myndum
Man ekki hvaða ár þetta var en þetta var árið sem Áni Kóps var á Isuzunum
Þarna eru líka myndir af stuntstökki út í ánna á fjórhjóli
Gömul torfærukeppni á Hellu myndir
-
- Innlegg: 1157
- Skráður: 01.aug 2010, 12:02
- Fullt nafn: Ástmar Sigurjónsson
- Bíltegund: Nissan Patrol '98
Re: Gömul torfærukeppni á Hellu myndir
alltaf gaman að þessu :)
"Ég sagði ekki að það væri þér að kenna,
Ég sagðist ætla að kenna þér um það"
Ég sagðist ætla að kenna þér um það"
Re: Gömul torfærukeppni á Hellu myndir
Skemmtilegar myndir, ryfja upp gamlar minningar. Ég var á þessari keppni, Árni kom í sennilega fyrstu þraut, og allir forviða hvað þessi Isusu væri að gera, hann komst ca 2 metra áður enn hann gróf sig niður að aftan. Kynnirinn og allir skellihlógu og gerðu grín að honum, en þá opnaðist hurðin og Árni hljóp út að framdekkinu. Hann hafði gleymt að setja lokurnar á en gott ef hann kláraði svo ekki brekkuna.
Það sem eftir kom var hrein skemmtun og hann vann alla á sitt band með áræðni og skemmtilegum akstri.
Mig minnir að hann hafi fengið undanþágu til að fá að fara í mýrina. ;)
Það sem eftir kom var hrein skemmtun og hann vann alla á sitt band með áræðni og skemmtilegum akstri.
Mig minnir að hann hafi fengið undanþágu til að fá að fara í mýrina. ;)
Einar Kristjánsson
R 4048
R 4048
Tengdir notendur
Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 2 gestir