Ætla aðeins að taka saman nokkra bíla og setja inn hvað er í hverjum bíl, svona til gamans, vona að einhverjir hafi gaman af því. Allar myndir eru mína sem ég hef tekið. Flest video eru frá Jakob C https://www.facebook.com/jakobcoffroad?fref=ts
1. Flokkur: Sérútbúnir Bíll Heimaætan Gerð: Ford Bronco special edition Árni Kóps Árgerð: 1990 Vél: 434 sbc Skipting: Th 350 Kassi: Ljónakassi Þyngd: 1550kg Hásingar: Framan, Dana 60 með 35 rillu öxlum. Aftan 9" Ford með 35 rillu öxlum Áætluð torfæru hetöfl: 800 á gasi Þennan bíl þekkja allir. Þetta er sennilega sá bíll sem er búinn að hafa flestar vélar í torfærunni. allt frá 350 sbc til stóra bbc 1200 hö
Myndir:
Meistarinn sem smíðaði hann á sínum tíma, Árni Kóps
Driverinn og sá sem á hann í dag Elmar Jón
Video sem sínir sögu bílsins. Fann þetta á netinu https://vimeo.com/83245312 [vimeo]https://vimeo.com/83245312[/vimeo]
2. Flokkur: Sérútbúnir Bíll: Guttinn Reborn Árgerð: 2014 Vél: 468 bbc Skipting: C6 Kassi: Ljónakassi Þyngd: 1700 kg Hásingar: Framan Dana 60 með dana 50 liðhús og kúluliðöxlum, aftan 10,25 full float Áætluð torfæru hestöfl: 700 + 200 gas Virkilega vel smíðaður bíll og alltaf gaman að sjá hann, aldrei neitt sparað.
Myndir:
Driverinn: Ingó, Ingólfur Guðvarðar
Video frá Jakob C
3. Flokkur: Sérútbúnir Bíll: Kubbur Árgerð: 2011 Vél: 2,4 Honda Skipting: Chrysler 904 Hásingar: 9" Ford framan og aftan á hvolfi Þyngd: 1050kg Áætluð torfæru hestöfl: 190 + smá blástur, er líka með gas Þetta er alveg fáranlega skemmtilegur bíll að horfa á og heyra í. Góð og öðrvísi smíði á þessum hjá Magga. Vélin afturí og hásingar á hvolfi. Skítléttur með feiki orku Driverinn: Magnús Sigurðsson
Myndir:
Video frá Jakob [youtube]https://www.youtube.com/watch?t=11&v=LPVkTuKdLkQ[/youtube]
Re: Torfærubílar
Posted: 09.jún 2015, 13:58
frá Járni
Frábær samantekt, endilega meira!
Re: Torfærubílar
Posted: 09.jún 2015, 19:45
frá Brjotur
Alltaf hefur mér þótt einhver sjarmi yfir heimasætunni :) skemmtilegar hreyfingar og hreinlega eins og hún sé með aðdráttarafl jarðar með sér :) lesist frábær fjöðrun :)
Re: Torfærubílar
Posted: 09.jún 2015, 20:17
frá Svenni30
Ég er alveg sammála þér Helgi. Heimasætan hefur alltaf verið í uppáhaldi hjá mér. Frá því ég byrjaði að horfa á torfæruna 1989 eða 90 Svo fannst mér líka jaxlinn þórir schiöth alltaf flottur. 4hjóla stýri og sjálfstæð fjöðrun á öllum og alltaf með stærstu vélarna.
Re: Torfærubílar
Posted: 10.jún 2015, 18:57
frá Jakob C
Flott samantekt! :)
Re: Torfærubílar
Posted: 10.jún 2015, 20:50
frá Svenni30
Takk takk Jakob, klára svo þegar ég nenni :) P,s Sjáumst á Egilsstöðum
Re: Torfærubílar
Posted: 12.jún 2015, 13:04
frá Svenni30
4.
Flokkur: sérútbúnir Bíll: Katla Túrbó tröll Gerð: Ford Bronco Árgerð: 1972 Vél: Nelson Racing 428 Ford twin turbo Skipting: C6 Kassi: Ljónakassi Þyngd: 1600 kg án ausudekkja Hásingar: 9" ford framan og aftan Áætluð torfæru hestöfl: 1640 en katla er hófleg og lætur sér oftast dugaí kringum 1000 í keppni Alltaf gaman að sjá þennan bíl og einstaklega gaman að heyra í túrbínunum Driverinn: Bubbi, Guðbjörn Grímsson
Myndir:
Svo 2 video eftir Jakob
Eitt það flottasta sem ég hef séð, þegar kallinn fór yfir ánna á Hellu
5.
Flokkur: sérútbúnir Bíll: Kórdrengurinn Gerð: Mússó Árgerð: 1999-2000 Vél: LS3 427 chevy Skipting: Powerglide Kassi: Ljónakassi Þyngd: 1100 kg Hásingar: Fr 9" með sérsmíðuðum liðhúsum og man vorubílaöxlum. Af 9" með 35 rillu öxlum Áætluð torfæru hestöfl: 625 + 125 gas Driverinn: Snorri Þór Árnason Þetta er yfirburða bíll og alltaf gaman að horfa á hann í keppnum. Léttur og vel smíðaður Halli P smíðaði hann á sýnum tíma byrjaði með v6 keppnis vél úr nascar held ég örugglega.
Myndir: Snorri sjálfur
Video frá Jakob
6.
Flokkur: Sérútbúnir Bíll: Draumurinn Árgerð: 1996 Vél: 540 BBC Skipting: Sprengiþolin powerglide Kassi: dana 20 ? Þyngd: 1640kg Hásingar: Fr Dana 60 með 35 rillu öxlum. Af 14 bolta full floating GM Áætluð torfæru hestöfl: 800 + 300 gas Driverinn: Gestur j. Ingólfsson Þessi hefur stóra vél sem hefur ekki alltaf gengið vel, en það er á leiðinni í bílinn flott inspíting, predda dótið fær að víkja þá fer þessi að virka svakalega.
Myndir:
Video frá Jakob
Re: Torfærubílar
Posted: 12.jún 2015, 14:19
frá Svenni30
7.
Flokkur: Sérútbúnir Bíll: Ceash Hard Gerð: Willys Árgerð: 2006 Vél: 434 sbc Skipting: TH 350 Kassi: Ljónakassi Þyngd: ? Hásingar: Sérsmíðuð Man framhásing og 14 bolta GM að aftan Áætluð torfæru hestöfl: ? Driverinn: Valdimar Jón Sveinsson Þennan bíl smíðaði Gunni trúður, hefur alltaf virkað hrikalega vel
Myndir:
Video frá Jakob
8.
Flokkur: Sérútbúnir Bíll: Insane Árgerð: 2007 Vél: LS7 chevy Skipting: Powerglide Kassi: Ljónakassi Þyngd: 1550 kg Hásingar: Fr Sérsmíðuð 9" með 35 rillu öxlum. Af 9" Ford með 40 rillu öxlum Áætluð torfæru hestöfl: ? Driverinn: Svanur Örn Tómasson Flottur bíll sem kemur frá Norway var í eigu Martin Michaelsen
Myndir:
Video frá Jakob
9.
Flokkur: Sérútbúnir Bíll: Spiderman Árgerð: 1990 ? Vél: 383 sbc Skipting: TH 350 Kassi: dana 20 Þyngd: ? Hásingar: Fr Dana 60 með 9" miðju. Af 9" Ford Áætluð torfæru hestöfl: ? Driverinn: Þór Þormar Pálsson Gamall og reyndur bíll frá Egilsstöðum, hét áður hlébarðinn
Myndir:
Video frá Jakob
10.
Flokkur: Sérútbúnir Bíll: Taz Árgerð: 2013 Vél: 355 sbc Skipting: TH 350 Kassi: Ljónakassi Þyngd: 1720 kg Hásingar: Fr Dana 60 með 35 rillu öxlum. Af 14 bolta GM full float Áætluð torfæru hestöfl: 850 með gasi Driverinn: Haukur Viðar Einarsson Bíll sem Benni hlunkur smíðaði
Myndir:
Video frá Jakob
11.
Flokkur: Sérútbúnir Bíll: Iron Maiden Árgerð: 1997 Vél: 540 BBC Skipting: TH 350 Kassi: Ljónakassi Þyngd: ? Hásingar: Fr Dana 60. Af 14 bolta GM Áætluð torfæru hestöfl: ? Driverinn: Leó Viðar Björnsson Þessi er búinn að vera lengi í torfærunni. Smíðaður af Helga schiöth
Myndir:
Video frá Jakob
Re: Torfærubílar
Posted: 12.jún 2015, 14:33
frá Startarinn
Varðandi mussoinn sem Halli P smíðaði, þá sagði Gunnar Egils mér á sínum tíma að þessi vél ætti ekkert skylt við Nascar annað en að vera V6. Blaðamaður spurði Halla eitthvað á þann veg hvort þessi vél væri eins og það sem væri í Nascarbílunum og Halli svaraði víst já, þannig byrjaði kjaftasagan
Re: Torfærubílar
Posted: 12.jún 2015, 14:59
frá Svenni30
Já ok ég hef alltaf haldið að þessi vél hafi komið úr Nascar, minnir einmitt að ég hafi lesið það í blaði fyrir mörgum árum. Þá er það komið á hreint. En veistu hvað v6 þetta var ? en þessi sexa vann alltaf mjög vel í þessum bíl enda léttur
Re: Torfærubílar
Posted: 12.jún 2015, 17:10
frá Svenni30
Sérútbúnir Götubílar.
1.
Flokkur: Sérútbúnir götubílar Bíll: Snáðinn Gerð: Ford CJ2 Árgerð: 1991 Vél: 427 sbc Skipting: Powerglide Kassi: Ljónakassi Þyngd: 1550 kg Hásingar: Fr Dana 44/ dana60. Af 9" Ford Áætluð torfæru hestöfl: 600 + 150 gas Driverinn: Jón Vilberg Gunnarsson Þessi bíll er búinn að vera lengi að. Pabbi Nonna er Gunnar Pálmi Pétursson. Margfaldur meistari á þessum bíl. Nonni er svo að fara smíða nýjan bíl og stefnir á Sérútbúna flokkinn á næsta ári. Má búast við flottum bíl því þeir feðgar eru meistar smiðir Hann er búinn að vera íslandsmeistari í götubílaflokki og sérútbúna götubíla flokknum. Þá er bara að taka þetta á næsta ári þá er allt komið.
Myndir:
Video frá Jakobi
2.
Flokkur: Sérútbúnir götubílar Bíll: Dýrið Gerð: Landrover Árgerð: 2008 Vél: 434 sbc Skipting: TH 400 Kassi: Ljónakassi Þyngd: 1650 kg Hásingar: Fr 9" Ford með 60 öxlum. Af 14 bolta GM Áætluð torfæru hestöfl: 700 Driverinn: Bjarki Reynisson Dala bóndinn er búinn að vera lengi að keppa. Flottur driver
Myndir: koma seinna
Video frá Jakob kemur seinna.
3.
Flokkur: Sérútbúnir götubílar Bíll: Zombie Árgerð: 2014 Vél: 505 BBC Skipting: Powerglide Kassi: Ljónakassi Þyngd: 1600kg Hásingar: Fr Dana 60. Af 9" Ford með 40 rillu öxlum Áætluð torfæru hestöfl: ? Driverinn: Aron Ingi Svansson
Myndir: koma seinna
Video frá Jakob kemur seinna
Re: Torfærubílar
Posted: 12.jún 2015, 17:22
frá jeepcj7
Iron maiden er 1997 árgerð í upphafi en er búin að breytast slatta síðan að flestu leyti, Helgi keppti á honum að mig minnir fyrst í vorkeppni á akureyri 1997.
Re: Torfærubílar
Posted: 12.jún 2015, 17:29
frá Svenni30
Götubílar
1.
Flokkur: Götubílar Bíll: Kölski Gerð: Willys CJ5 Árgerð: 1973 Vél: 468 Big Block Buick Skipting: 350 Kassi: Dana 20 Þyngd: 1650 kg Hásingar: Nissan Patrol framan og aftan Áætluð torfæru hestöfl: ? Driverinn: Ívar Guðmundsson Íslandsmeistari 2014
Myndir: Koma seinna
Video frá Jakob kemur seinna.
2.
Flokkur: Götubílar Bíll: Strumpurinn Gerð: Willys Árgerð: 1964 Vél: 350 sbc Skipting: TH 350 Kassi: Dana 300 Þyngd: 1750 kg Hásingar: Dana 44 Áætluð torfæru hestöfl: 400 Driverinn: Steingrímur Bjarnasson Gamall refur í torfærunni. Á 25 ára aksturafmæli í ár
Myndir: koma seinna
Video frá Jakobi kemur seinna
3.
Flokkur: Götubílar Bíll: Þeytingur Gerð: Willys Árgerð: 1964 Vél: 383 sbc Skipting: TH 350 Kassi: Dana 300 Þyngd: 1450 kg Hásingar: Dana 44 Áætluð torfæru hestöfl: 400+ Driverinn: Haukur Birgisson Haukur er á fyrsta ári í torfærunni
jeepcj7 wrote:Iron maiden er 1997 árgerð í upphafi en er búin að breytast slatta síðan að flestu leyti, Helgi keppti á honum að mig minnir fyrst í vorkeppni á akureyri 1997.
Takk fyrir þetta Hrólfur. Smíðaði Helgi ekki fyrst bílinn hjá Einari Gunnlaugs og síðan sinn ? Gæti verið rétt hjá þér að helgi hafi keppt fyrst 97 á þessum bíl. Reyndar minnti að hann hafi byrjað 98 en skiptir ekki öllu
Re: Torfærubílar
Posted: 12.jún 2015, 20:49
frá olafur f johannsson
Draumurinn er smíðaður 1996 og er fyrsta keppni í maí 1997. Var með 468Bbc og th 350 dana 20millikassa dana 60framan og 9" aftan Var smíðaður og hannaður af Einari Gunnlaugs og Helga Schiöth. Helgi smíðai svo Frissa fríska 1997.
Re: Torfærubílar
Posted: 12.jún 2015, 20:50
frá olafur f johannsson
Spiderman er með dana 20millikasa
Re: Torfærubílar
Posted: 12.jún 2015, 20:58
frá Startarinn
Svenni30 wrote:Já ok ég hef alltaf haldið að þessi vél hafi komið úr Nascar, minnir einmitt að ég hafi lesið það í blaði fyrir mörgum árum. Þá er það komið á hreint. En veistu hvað v6 þetta var ? en þessi sexa vann alltaf mjög vel í þessum bíl enda léttur
Nei, það fylgdi ekki sögunni hvaðan vélin var ættuð, en það eru líka í kringum 16 ár síðan Gunni sagði mér þetta. En ég man það að vélin mok vann, nú hef ég ekki fylgst með torfærunni í mörg ár, hvernig er bíllinn með v8?
Re: Torfærubílar
Posted: 12.jún 2015, 21:01
frá olafur f johannsson
Davíð Óla smíðaið Musso með Halla Pé og eins birjaði Davíð Óla að smíða Crash hard en Gunni Gunn kláraði hann .
Re: Torfærubílar
Posted: 12.jún 2015, 21:02
frá olafur f johannsson
Mig minir að Benni Eiríks hafi flutt v6 vélina inn fyrir Halla á sínum tíma
Re: Torfærubílar
Posted: 12.jún 2015, 22:00
frá ellisnorra
Mjög fróðlegt finnst mér að vita viktunartölur. Margir bílar voru vigtaðir á Hellu 17. maí 2014.
330 Stefán Bjarnhéðinsson - Kaldi fór ekki á viktina 303 Ívar Guðmundsson - Kölski 1650 kg 302 Steingrímur Bjarnason – Strumpurinn 1750 kg 305 Sævar már Gunnarsson – Bruce Willys 1450 kg 304 Eðvald Orri Guðmundsson – Pjakkurinn 1450 kg 99 Valdimar Jón Sveinsson – Crash Hard fór ekki á viktina 203 Jón Vilberg Gunnarsson – Snáðinn 1550 kg 3 Elmar Jón Guðmundsson – Heimasætan 1550kg 20 Svanur Örn Tómasson – Insane 1550 kg 13 Daníel Gunnar Ingimundarson – Yellow Thunder (lánsbíll) 1500 kg 9 Helgi Gunnarsson – Gæran 1600 kg 201 Bjarki Reynisson – Dýrið 1650 kg 5 Guðbjörn Grímsson – Katla 1600 kg án ausudekkja 11 Benedikt Helgi Sigfússon – Hlunkurinn 1720 kg 33 Guðni Grímsson – Kubbur 1050kg 32 Aron Ingi Svansson – Zombie 1600kg 1 Snorri Þór Árnason – Kórdrengurinn 1100 kg 4 Ingólfur Guðvarðar – Guttinn reborn again 1700 kg 202 Haukur Þorvaldsson – Jokerinn 1380 kg
Re: Torfærubílar
Posted: 12.jún 2015, 22:04
frá Svenni30
Flott input Elli Set inn viktar tölur
Re: Torfærubílar
Posted: 12.jún 2015, 22:17
frá Svenni30
Startarinn wrote:
Svenni30 wrote:Já ok ég hef alltaf haldið að þessi vél hafi komið úr Nascar, minnir einmitt að ég hafi lesið það í blaði fyrir mörgum árum. Þá er það komið á hreint. En veistu hvað v6 þetta var ? en þessi sexa vann alltaf mjög vel í þessum bíl enda léttur
Nei, það fylgdi ekki sögunni hvaðan vélin var ættuð, en það eru líka í kringum 16 ár síðan Gunni sagði mér þetta. En ég man það að vélin mok vann, nú hef ég ekki fylgst með torfærunni í mörg ár, hvernig er bíllinn með v8?
Hann rót vinnur með v8 og virkar alveg frábærlega. Minnir að Jón Örn Ingileifsson hafi gefist upp á v6 og setti 8una í hann man ekki hvenar en sennilega 2008 eða 2009
Re: Torfærubílar
Posted: 12.jún 2015, 22:23
frá olafur f johannsson
Drekinn/ Draumurinn viktaði nýr á 36" ausum með 25líta af bensíni og einum rafgeimi og tveim nítró flöskum 1640kg
Re: Torfærubílar
Posted: 12.jún 2015, 22:59
frá Svenni30
Takk Óli þú er fáránlega vel að þér í þessum fræðum :) Mér finnst sniðugt að safna þessum upplýsingum fyrir aðra svo þeir vita hvað er í hverjum bíl.
En hvernig má það vera að Strumpurinn hjá steina sé 1750 kg, var viktað með ökumanni ? vona að ég sé ekki að móðga neinn, en kallinn er stór og mikill
Re: Torfærubílar
Posted: 12.jún 2015, 23:13
frá olafur f johannsson
Já ég eyddi öllum mínum frítíma í torfæruna frá 1992 til 2000 :) var aðstoðamaður hjá Einari Gunnlaugs frá 1994 til 2000 ásamt því að vinna hjá honum á Hjólbarðaþjónustu Einars frá 94 til 99. En núna fylgist ég bara með úr fjaska. Mest á netinu hef ekki allveg fundið áhugan alveg enþá aftur
Re: Torfærubílar
Posted: 12.jún 2015, 23:17
frá olafur f johannsson
Já og það er gaman að eiga þessar upplýsingar það er gaman af þeim :)
Re: Torfærubílar
Posted: 12.jún 2015, 23:33
frá Jakob C
Mig minnir að Jón Ingileifs hafi farið út til Noregs með bíllinn árið 2009 og V6 hafi eyðilagst úti þannig hann keypti V8 útí Noregi og þeir þurftu að breyta bílnum mikið þarna útí Noregi á engum tíma svo vélin passaði í bíllinn svo hann gæti keppt. Mig minnir að þetta hafi verið svona, hef þetta samt ekki staðfest svo það sé á hreinu hehe :) https://www.youtube.com/watch?v=BvD_k80VHys
Re: Torfærubílar
Posted: 12.jún 2015, 23:49
frá Valdi B
Svenni30 wrote:
Startarinn wrote:
Svenni30 wrote:Já ok ég hef alltaf haldið að þessi vél hafi komið úr Nascar, minnir einmitt að ég hafi lesið það í blaði fyrir mörgum árum. Þá er það komið á hreint. En veistu hvað v6 þetta var ? en þessi sexa vann alltaf mjög vel í þessum bíl enda léttur
Nei, það fylgdi ekki sögunni hvaðan vélin var ættuð, en það eru líka í kringum 16 ár síðan Gunni sagði mér þetta. En ég man það að vélin mok vann, nú hef ég ekki fylgst með torfærunni í mörg ár, hvernig er bíllinn með v8?
Hann rót vinnur með v8 og virkar alveg frábærlega. Minnir að Jón Örn Ingileifsson hafi gefist upp á v6 og setti 8una í hann man ekki hvenar en sennilega 2008 eða 2009
og keypti snorri ekki bílinn vélarlausann og flutti síðan inn ls3 mótor frá blueprint og setti í hann
Re: Torfærubílar
Posted: 12.jún 2015, 23:54
frá Svenni30
Jú minnir það, átti hann maður sem heitir Dagbjartur minnir mig þarna á milli. Snorri kaupir af honum. Var þetta ekki svona ?
Re: Torfærubílar
Posted: 13.jún 2015, 11:02
frá Jakob C
Jón Ingileifss keypti bílllinn 2008 og var á bílnum til 2010. Dagbjartur kaupir bíllinn og keppir á honum 2011 reyndar bara í 2 keppnum af 4. Jón Ingileifss fær bíllinn lánaðann og keppir 2012. Snorri kaupir svo bíllinn 2013.
Re: Torfærubílar
Posted: 17.jún 2015, 22:48
frá Valdi B
sá að það vantaði einn hérna ákvaðað bæta honum við :) hver er eigandinn af honum og eins þá væri gaman ef eitthverjir vita , hvaða gotterý er í mótor og hve mikið gas og slíkt. kúl bíll og mér finnst flott old school lúkk á honum, minnir mig á bílana sem voru að keppa fyrir 2000
Flokkur: Sérútbúnir
Bíll: Tímaur
Vél: 350sbc
skipting: th 350
kassi: dana 20 eins og var mest notað "in the old days"
hásingar: eru undan '73 blazer, dana 44 að framan með brjótanlegum öxlum og 12 bolta gm aftan sem er yfirgengilega brothætt með meira móti.
Jakob C wrote:Mig minnir að Jón Ingileifs hafi farið út til Noregs með bíllinn árið 2009 og V6 hafi eyðilagst úti þannig hann keypti V8 útí Noregi og þeir þurftu að breyta bílnum mikið þarna útí Noregi á engum tíma svo vélin passaði í bíllinn svo hann gæti keppt. Mig minnir að þetta hafi verið svona, hef þetta samt ekki staðfest svo það sé á hreinu hehe :) https://www.youtube.com/watch?v=BvD_k80VHys
Rétt, Jón lét Fredrik nokkurn í Noregi setja innspítingu á sexuna og það fór ekki betur en svo að vélin gataði stimpil þegar verið var að dyno testa hana að mig minnir 2-3 dögum fyrir keppni og þá var farið og versluð 377 kúbika sbc og henni möndlað ofaní daginn og nóttina fyrir keppni. Það vildi svo heppilega til að þessi V6 hreyfill var af Chevrolet gerð og var bara stytt útgáfa af 8 cylendra small blockinni svo að ýmsir hlutir pössuðu á milli. Til dæmis gátu þeir notað sömu flækjurnar áfram með smávægilegum breytingum eins og að sjóða við þær eitt rör til viðbótar.