Síða 1 af 1

Stapafell ´15

Posted: 25.maí 2015, 12:46
frá jeepcj7
Jæja eru engin video eða neitt frá þessu,var reyndar frekar fámenn keppni og fullt af brasi á keppendum en samt bara gaman eins og alltaf.
Bíllinn hjá Snorra kominn í toppform allavega.
Tók bara myndir af vesalings framhásingunni undir spiderman en hún er líka búin að fá að kenna á því í gegn um tíðina.;O)

Re: Stapafell ´15

Posted: 25.maí 2015, 14:36
frá Svenni30
Mætti nú alveg styrkja þessa hásingu betur fyrir þessi átök.

En Hérna eru video
Frá meistara Jakob C
Allir að skoða hjá honum facebook síðuna https://www.facebook.com/jakobcoffroad?fref=ts




Svo annað að veltunni hjá Svan á Insane ansi hraustleg velta. boginn afturhásing eftir þetta


Re: Stapafell ´15

Posted: 25.maí 2015, 19:42
frá jeepcj7
Það er ekki vaninn að þurfa styrkja dana 60 í fisléttan torfærubíl þar sem þetta er yfirleitt óstyrkt undir 5 tonna vörubílum en svona getur greinilega alltaf gerst.

Re: Stapafell ´15

Posted: 25.maí 2015, 20:15
frá Svenni30
Skil hélt að þessar hásingar væri styrktar alveg helling undir þessum torfærubílum til að einmitt að forðast að lenda í þessu.
Hef í sjálfum sér ekkert mikið spáð í þessu, en aðeins skoðað þessa bíla í keppnum.
Sá eimnitt að hásinginn sem er undir Insane er mikið styrkt eins hjá íngó og Snorra en það eru kannski allt öðrvísi hásingar, er ekki hásinginn hjá Snorra 9" ford með vörubíla öxlum ?

Eins og ég segi þá hef ég ekki mikið vit á þessu torfæru dóti eins og þú.
Á ekkert að fara keppa aftur ? :)

Re: Stapafell ´15

Posted: 25.maí 2015, 20:35
frá Svenni30
Svo er það Egilsstaðir næst. Þar er alltaf mjög flott keppni. Ætla að fara þangað og mynda

Re: Stapafell ´15

Posted: 26.maí 2015, 18:59
frá Járni
Smá innskot í sambandi við að fella inn myndbönd á síðuna.

Eins og staðan er núna er hægt að fella inn myndbönd frá tveim helstu síðunum, Youtube og Vimeo.

Til þess að spilarinn birtist verða hlekkirnir að vera svona:

Code: Select all

[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=Gtk8vyisyZ8[/youtube]
og

Code: Select all

[vimeo]http://www.vimeo.com/128741834[/vimeo]

Edit: Núna á að virka að hafa https! Svo það þarf ekki að breyta slóðinni

Re: Stapafell ´15

Posted: 26.maí 2015, 20:39
frá Svenni30
Takk fyrir þetta Árni, gott að vita af þessu

Re: Stapafell ´15

Posted: 27.maí 2015, 22:44
frá Valdi B
hvernig dana 60 hásing er þetta undir spiderman ? hafa menn verið að leitast eftir eitthverjum sérstökum gerðum af dana 60 hásingum undir torfærubílana eða skiptir engu máli hvað er notað dodge eða gm ?

Re: Stapafell ´15

Posted: 31.maí 2015, 05:30
frá jeepcj7
Þetta er dana 60 líklega undan dodge svokölluð king pin sem vitnar í spindilbúnaðinn sem er á henni og var allsráðandi til ca. 1991-3 þá komu spindilkúlur í staðinn.
En hann er nýkominn með ofuröxla með kúluliðum og þá bara brotnar helv. rörið. ;O)

Re: Stapafell ´15

Posted: 09.jún 2015, 09:03
frá Svenni30
Búið að styrkja duglega hásinguna sem er að fara undir spiderman

Re: Stapafell ´15

Posted: 09.jún 2015, 09:46
frá Járni
Meira svona torfæraskúrabras og lausnir, takk!

Re: Stapafell ´15

Posted: 09.jún 2015, 13:13
frá Maggi
Hvaða hásingakokteill er þetta, patrol miðja?

Re: Stapafell ´15

Posted: 09.jún 2015, 15:48
frá jeepcj7
Er þetta ekki 9" ford og 60 kingpin liðhús ?
Ég myndi styrkja alla leið út á liðhús það er kannski bara eftir að klára það ?
Bara flott að allt er að skríða saman keep it up.

Re: Stapafell ´15

Posted: 09.jún 2015, 19:26
frá Svenni30
9" miðja og dana 60 rör

Re: Stapafell ´15

Posted: 12.jún 2015, 23:42
frá Svenni30
10857868_1073860939310285_2406731400907671604_n.jpg
10857868_1073860939310285_2406731400907671604_n.jpg (67.62 KiB) Viewed 16475 times