Síða 1 af 1

torfæra Akureyri

Posted: 13.aug 2014, 18:53
frá solemio
Hvort er skemmtilegra á laugardegi eða sunnudegi

Re: torfæra Akureyri

Posted: 13.aug 2014, 20:01
frá Svenni30
Myndi nú bara koma á báða daganna :) en ætli sunnudagurinn sé ekki betri þá eru menn kannski að spara minna, en hvað veit ég

Re: torfæra Akureyri

Posted: 13.aug 2014, 21:48
frá Freyr
Meiri líkur á að menn gefi allt í botn á sunnudag en spari bílana aðeins á laugardag. Hinsvegar eru ábyggilega færri með á sunnudag því einhverjir bílar detta úr leik á laugardag.

Re: torfæra Akureyri

Posted: 13.aug 2014, 23:37
frá biturk
Koma báða dagana var að uppfrá að klára að leggja brautir fyrir laugardaginn og þetta verður sturlað!

Re: torfæra Akureyri

Posted: 13.aug 2014, 23:46
frá Freyr
FIA torfæran ykkar á Akureyri 2012 er flottasta torfæra sem ég hef farið á og læt mig ekki vanta núna, báða dagana!

Re: torfæra Akureyri

Posted: 14.aug 2014, 00:02
frá solemio
Þarf að velja annan hvorn daginn vegna vinnu

Re: torfæra Akureyri

Posted: 14.aug 2014, 00:24
frá biturk
Ég ábyrgist að þetta verður geðveikt og menn fá show fyrir aurinn og brautirnar eru þannig að það dugir ekkert lull eða hlífa bílnum

Re: torfæra Akureyri

Posted: 14.aug 2014, 01:18
frá Freyr
Mæli þá frekar með sunnudeginum, þá er meira í húfi fyrir menn og veðrið mikið betra en á laugardag.

Re: torfæra Akureyri

Posted: 20.aug 2014, 13:47
frá Jakob C
Allavega kominn tvo video frá mér, eitt frá Laugardeginum og eitt frá Sunnudeginum svona það helsta.
Framundan er svo að klippa saman hver keppenda fyrir sig og nota dáltið GoPro innan úr bílunum í það þannig endilega fylgist með mér á youtube :)
https://www.youtube.com/user/jakobcecil

Re: torfæra Akureyri

Posted: 20.aug 2014, 14:06
frá Brjotur
Frabær vinna að venju Jakop C :)

Re: torfæra Akureyri

Posted: 20.aug 2014, 15:12
frá biturk
Þú ert meistari jakob og það var heiður að hafa þig hjá sér í brautinni!