Leit skilaði 86 niðurstöðum
- 11.mar 2011, 10:39
- Spjallborð: Almennt spjall
- Umræða: Hvar fær maður ullar föðurland á góðu verði
- Svör: 4
- Flettingar: 3518
Re: Hvar fær maður ullar föðurland á góðu verði
Ég nota sjálfur ullarföt úr Janus búðinni (sem er flutt á Laugaveginn). Yfir því er ég venjulega í grunnlagsflíspeysu, fór og kíkti á 66N vefinn og sé að mín heitir "Vík hálfrennd peysa". Í miklum kulda á ég flísbuxurnar við þessa peysu, en þarf sjaldan að fara í þær. Þetta hefur reynst mé...
- 10.mar 2011, 17:32
- Spjallborð: Vara og aukahlutir
- Umræða: Vantar ekki lengur
- Svör: 0
- Flettingar: 393
Vantar ekki lengur
Vantar stuðarahorn hægra megin að framan í 1998 Pajero, helst silfurlitað og gerðin sem er með lítilli grind þar sem þokuljósin eiga að vera. Væri líka til í að kaupa bæði hornin með þokuljósum.
Sími 822 8411, tölvupóstur arnijr á gmail punktur com
Partaland reddaði mér.
Sími 822 8411, tölvupóstur arnijr á gmail punktur com
Partaland reddaði mér.
- 10.mar 2011, 12:52
- Spjallborð: Almennt spjall
- Umræða: Cyclone fuel saver ?
- Svör: 16
- Flettingar: 4898
Re: Cyclone fuel saver ?
Settu þetta og svo vetnisdótið í bílinn. Þegar hann er farinn að framleiða dísel skal ég kaupa af þér umframolíuna á sanngjörnu verði :-)
- 03.mar 2011, 22:52
- Spjallborð: Almennt spjall
- Umræða: Minnkar bensíneyðslu um 30%
- Svör: 23
- Flettingar: 8408
Re: Minnkar bensíneyðslu um 30%
Hér er það sem Consumer Affairs hefur um þetta að segja: http://www.consumeraffairs.com/news04/2008/07/water4gas.html . Við lauslega athugun á þessu kemur í ljós að það getur virkað að blanda vetni með eldsneytis/loftblöndunni, en þá í miklu miklu hærri hlutföllum en svona kerfi ræður við. Í grunnat...
- 28.feb 2011, 00:05
- Spjallborð: Almennt spjall
- Umræða: Flottar Lödur
- Svör: 4
- Flettingar: 1876
Re: Flottar Lödur
Eins gott að reyna ekki að sigla yfir einhver straumvötn á svona, gæti endað heldur neðar í fljótinu en maður hafði í hyggju.
Re: MMC Pajero 35"
Hættur við að setja hann á 38"? Ég var farinn að hlakka til að lesa lýsinguna á því verki.
- 20.feb 2011, 18:30
- Spjallborð: Umhverfis- og hagsmunamál
- Umræða: Friðlýsing
- Svör: 5
- Flettingar: 4455
Re: Friðlýsing
Ég held að í Langasjós málinu sé akkurat farið fram með réttum forsendum, það er verið að vernda land og það kemur í veg fyrir að því verði drekkt með virkjun. S.s. ógnin sem stafar að landinu þarna er virkjun og það er landvernd að koma í veg fyrir hana. Hvað varðar Vonarskarð þá er það erfiðara að...
- 20.feb 2011, 18:22
- Spjallborð: Almennt spjall
- Umræða: 4x4 Buggy ?
- Svör: 24
- Flettingar: 6516
Re: 4x4 Buggy ?
Hvað þarf mikið til svo maður geti bara haldið götuskráningunni af "líffæragjafanum"? Er ekki Tomcat skráður sem Range Rover eða Land Rover eftir atvikum? Þar er ekki gefið að það sé annað eftir af upprunalega bílnum en grindin. Nægir kannski að hafa með grindarbút úr einhverju sem er ennþ...
- 20.feb 2011, 11:44
- Spjallborð: Umhverfis- og hagsmunamál
- Umræða: Friðlýsing
- Svör: 5
- Flettingar: 4455
Re: Friðlýsing
Ekki að ég ætli að fara að verja allt sem er verið að gera í umhverfismálum þessa dagana, en er ekki eðlilegt að friðlýsing snúist um að koma í veg fyrir að svæði verði skemmd eða eyðilögð? Virkjanir eyðileggja jú svæði, Langisjór væri ekki mikils virði sem náttúruperla ef hann væri undir uppistöðul...
- 11.feb 2011, 10:55
- Spjallborð: Ferðir og færð á fjöllum
- Umræða: Langjökull
- Svör: 31
- Flettingar: 9893
Re: Langjökull
Svona leit jökullinn út við Jaka í gær. Einn stór ísmoli. Varðandi youtube myndbandið frá elliofur, eru menn ekkert stressaðir að labba i kring um bíla sem eru með dekk ofan í sprungu? Ég væri það allaveganna.. Ég held að menn séu ekki næstum því nógu stressaðir yfir því. Ég myndi ekki fara út úr b...
- 25.jan 2011, 23:05
- Spjallborð: Breytingar, viðhald og viðgerðir
- Umræða: Breyta stuttum Pajero ´00
- Svör: 18
- Flettingar: 3785
Re: Breyta stuttum Pajero ´00
Ok, þetta er dásamlega gagnlegt, bæði teikningin frá Stebba og myndirnar frá Hauki. Endilega láttu okkur vita hvernig þetta kemur út hjá þér Haukur. Hvað er stéttin há?
- 19.jan 2011, 12:55
- Spjallborð: Almennt spjall
- Umræða: Breyting á Pajero...
- Svör: 23
- Flettingar: 5298
Re: Breyting á Pajero...
Þetta er allt eftir minni, það má vera að ég sé að gleyma einhverju. Það þarf að losa upp á áfyllingarstútnum og sennilega lengja í þeirri hosu, passa upp á að bremsuleiðslur gangi greiðlega út (það eru "hankir" sem þarf að rétta úr), passa upp á vatnskassann (spaðinn fer í hlífina og hosu...
- 14.jan 2011, 22:04
- Spjallborð: Vara og aukahlutir
- Umræða: Bílskúrssala
- Svör: 5
- Flettingar: 2421
Re: Bílskúrssala
Hvaða Pajero millikassar eru þetta? Vitið þið hvort menn hafa verið að nota svoleiðis kassa til að smíða milligír í Pajero?
- 14.jan 2011, 21:57
- Spjallborð: Mitsubishi
- Umræða: Vantar mótor eða blokk í Pajero 2.8 Td ´99
- Svör: 7
- Flettingar: 6222
Re: Vantar mótor í Pajero 2.8 Td ´99
Leiðinlegt með mótorinn þinn. Ég veit því miður ekki um svona mótor handa þér. Veit hins vegar að 3.2 mótorinn passar ofaní og við skiptinguna, vandamálið er bara að flytja tölvuna, svissinn og allar skynjara sem þurfa að vera.
- 12.jan 2011, 00:02
- Spjallborð: Almennt spjall
- Umræða: Breyting á Pajero...
- Svör: 23
- Flettingar: 5298
Re: Breyting á Pajero...
Til hvers samt að boddýhækka ef það er hægt að sleppa því? Það er ekki eins og það verði hærra undir bílinn með því að hækka boddýið? Til þess að koma undir stærri dekkjum með sem minnstu veseni ;) Já, minnstu veseni segirðu. Er ekki alltaf verið að gera grín að könunum sem þora víst ekki að taka u...
- 08.jan 2011, 19:32
- Spjallborð: Almennt spjall
- Umræða: Breyting á Pajero...
- Svör: 23
- Flettingar: 5298
Re: Breyting á Pajero...
Aðalmálið er að þú þarft stærri kantana, þeir kosta eitthvað nálægt hundraðþúsundkallinum, ómálaðir. Svo þarf að klippa úr, og sennilega best að hækka hann á boddí um 50-60mm og færa afturhásingu 30mm eða svo aftur. Því fylgir smá mix með millikassastöngina. Ég fékk mína kubba í Málmtækni, á mjög sa...
- 20.des 2010, 22:27
- Spjallborð: Vara og aukahlutir
- Umræða: Pajero 88 Stuttur
- Svör: 8
- Flettingar: 2677
Re: Pajero 88 Stuttur
Hvernig er grindin í honum, sérstaklega fyrir ofan hásingu? Þeir fara yfirleitt þar. Er bíllinn eitthvað breyttur, kantar á honum og slíkt? Áttu kannski myndir?
- 19.des 2010, 22:44
- Spjallborð: Dekk og felgur
- Umræða: Til sölu 35" Mud Terrain dekk
- Svör: 7
- Flettingar: 2522
Re: Til sölu 35" Mud Terrain dekk
15 tommu?
- 16.des 2010, 22:43
- Spjallborð: Vara og aukahlutir
- Umræða: Pajero 88 Stuttur
- Svör: 8
- Flettingar: 2677
Re: Pajero 88 Stuttur
Ertu að hugsa um að setja í hann 350 Kiddi?
- 15.des 2010, 15:22
- Spjallborð: Breytingar, viðhald og viðgerðir
- Umræða: Breyta stuttum Pajero ´00
- Svör: 18
- Flettingar: 3785
Re: Breyta stuttum Pajero ´00
Ódýrast að fara upp í Málmtækni og fá niðurskorin poly-öxul og bora miðjugatið sjálfur í standborvél. Ég hækkaði minn um 50mm en ef ég þyrfti að gera þetta aftur þá færi ég í 60mm. Það er mjög þægilegt að breyta þessum bílum og fátt sem er til vandræða eftir breytingar, eina raunverulega vesenið er...
- 08.des 2010, 22:25
- Spjallborð: Breytingar, viðhald og viðgerðir
- Umræða: Breyta stuttum Pajero ´00
- Svör: 18
- Flettingar: 3785
Re: Breyta stuttum Pajero ´00
Það er ekkert stórmál að koma þessum bílum á 38". Hvort það er nóg til að komast skammlaust á fjöll er svo skilgreiningaratriði, en ég held hann ætti að vera fínn svoleiðis. Eftirfarandi er án ábyrgðar, minn er lítið breyttur ennþá. Mér skilst að 50mm boddíhækkun sé nóg fyrir 38", en það g...
- 15.aug 2010, 20:14
- Spjallborð: Breytingar, viðhald og viðgerðir
- Umræða: pajero '99
- Svör: 11
- Flettingar: 2951
Re: pajero '99
Eftir því sem ég hef aftur á móti lesið þá er þessi boddíhækkun bara í 2.8TDI og 3500 bílunum, ekki í 2.5 og 3000. Sel það ekki dýrara en ég keypti það, las það á internetinu :) Það er hægt að sjá hvort bíllinn er hækkaður orginal með því að skoða hvort það er bil milli grindar og boddís innan við a...
- 14.aug 2010, 22:25
- Spjallborð: Breytingar, viðhald og viðgerðir
- Umræða: pajero '99
- Svör: 11
- Flettingar: 2951
Re: pajero '99
Er semsagt nóg að lyfta honum bara um 50mm á boddí og ekkert á fjöðrun? Það er þá væntanlega miðað við 2.8 eða 3500 bíl. Það er þá væntanlega skorið vel hressilega úr er það ekki?
- 10.aug 2010, 22:52
- Spjallborð: Almennt spjall
- Umræða: hvað á byrjandi í jeppamennsku að fá sér ????
- Svör: 20
- Flettingar: 4047
Re: hvað á byrjandi í jeppamennsku að fá sér ????
Já, þá hugsa ég að ég myndi helst leita að Hilux, einfalt og sterkt. Sennilega sjéns að fá góðan lítið eða ekki breyttan bíl fyrir þetta verð. Passaðu þig bara að fá nýrnabelti með honum ;-)
- 10.aug 2010, 21:10
- Spjallborð: Almennt spjall
- Umræða: Nú á að fá sér jeppa :)
- Svör: 62
- Flettingar: 13577
Re: Nú á að fá sér jeppa :)
Þá er búið að ráðleggja Snorra, hann á að fá sér Súkku, amerískan jeppa (en ekki með þrír-slappir-fimm undir húddinu) eða helst fullbreyttan Patrol (á hvað, 15 milljónir nýr?), nú, eða eitthvað annað. Eina sem við vitum áður en við ráðleggjum honum að kaupa jeppa eins og við eigum, er að hann á að v...
- 10.aug 2010, 10:46
- Spjallborð: Almennt spjall
- Umræða: hvað á byrjandi í jeppamennsku að fá sér ????
- Svör: 20
- Flettingar: 4047
Re: hvað á byrjandi í jeppamennsku að fá sér ????
Þú þarft náttúrulega að segja okkur miklu meira ef þú ætlar að fá viti borin svör, ekki bara hróp um hvaða tegundir séu bestar. Í hvað ætlarðu að nota jeppann? Ferðalög að sumri, jöklaferðir að vetri o.s.frv? Hvað ætlarðu að ferðast með marga? Geturðu gert við sjálfur? Hvað ertu til í að eyða í reks...
- 05.aug 2010, 18:44
- Spjallborð: Almennt spjall
- Umræða: Pajero '99 af 33" og á 35"
- Svör: 16
- Flettingar: 3561
Re: Pajero '99 af 33" og á 35"
Svo er niðurstaðan þá sú að það sé nauðsynlegt að hjólastilla bílinn eftir að hann er skrúfaður upp? Mér sýnist minn slíta dekkjum jafnt og fínt að framan og hann hefur ekki verið hjólastilltur eftir að ég skrúfaði hann upp. Efast um að ég láti gera það úr þessu, nema eftir að ég skrúfa hann niður e...
- 05.aug 2010, 13:32
- Spjallborð: Almennt spjall
- Umræða: Pajero '99 af 33" og á 35"
- Svör: 16
- Flettingar: 3561
Re: Pajero '99 af 33" og á 35"
Mér er nú ekki vel við að leiða að þvi líkum að það þurfi ekki að hjólastilla, en ætla að gera það samt. Þú hlustar á mig á eigin ábyrgð :) Ég sé ekki alveg afhverju það ætti nauðsynlega að þurfa. Það er ekki verið að breyta framfjöðruninni per se, bara herða aðeins á henni. nýja hvíldarstaðan er se...
- 04.aug 2010, 22:16
- Spjallborð: Almennt spjall
- Umræða: Pajero '99 af 33" og á 35"
- Svör: 16
- Flettingar: 3561
Re: Pajero '99 af 33" og á 35"
2.8TDI og 3500 bensín Pajero komu hækkaðir um 40mm frá Mitsubishi, til að koma fyrir stærri skiptingum sem fylgdu þessum vélum. Þú sért þetta ef þú horfir á bilið milli grindar og boddís innan við afturhjól, á þessum bílum er gap þar á milli sem er ekki í óbreyttum 3000 bíl. Ég lít þannig á að manni...
- 04.aug 2010, 22:12
- Spjallborð: Almennt spjall
- Umræða: Pajero '99 af 33" og á 35"
- Svör: 16
- Flettingar: 3561
Re: Pajero '99 af 33" og á 35"
Jú, ég gleymdi víst að minnast á það, ég þarf akkurat núna að skipta um eina innri öxulhosu. Betra að gera það meðan skaðinn er bara tvö þúsund króna hosa, áður en það verður sextíu þúsund króna liður. Það verður samt að segjast að hækkunin með kubbum að aftan og uppskrúfun að framan er fljótleg og ...
- 04.aug 2010, 14:02
- Spjallborð: Almennt spjall
- Umræða: Pajero '99 af 33" og á 35"
- Svör: 16
- Flettingar: 3561
Re: Pajero '99 af 33" og á 35"
Ég stóð í þeirri meiningu að kubbarnir væru 40mm, en Hella veit það sjálfsagt betur. Ég lét allavega eitt sett nægja. Þú sérð náttúrulega við gormana að aftan hvort það eru komnir kubbar undir hann. Ég held hann ætti ekki að vera að narta ef kubbarnir væru og búið að skrúfa hann upp, en það er auðve...
- 04.aug 2010, 13:18
- Spjallborð: Vefurinn - hugmyndir, ábendingar og tilkynningar
- Umræða: Lýsing á flokkum
- Svör: 0
- Flettingar: 1983
Lýsing á flokkum
Ég held það vanti einhverja stutta lýsingu á hverjum flokki fyrir sig (Almennt spjall, jeppinn minn o.s.frv), sem myndi hjálpa fólki að stofna þræði á réttum stað. Það ber orðið nokkuð á tæknimálum sem tengjast ákveðnum tegundum bæði í almennu spjalli og undir "Jeppinn minn", sem ættu nátt...
- 04.aug 2010, 11:56
- Spjallborð: Almennt spjall
- Umræða: Pajero '99 af 33" og á 35"
- Svör: 16
- Flettingar: 3561
Re: Pajero '99 af 33" og á 35"
Svo er náttúrulega gott að athuga fyrst hvort það er nokkuð búið að hækka bílinn upp nú þegar :)
- 04.aug 2010, 11:53
- Spjallborð: Almennt spjall
- Umræða: Pajero '99 af 33" og á 35"
- Svör: 16
- Flettingar: 3561
Re: Pajero '99 af 33" og á 35"
Finn ekki í fljótu bragði myndir af klossunum og samsláttarpúðunum. Það skýrir sig í raun alveg sjálft, bara spurning um að ná gormunum úr og koma klossunum upp fyrir þá. Ég gerði það með gormaklemmum og tjakk milli hásingar og grindar en það er líka hægt að gera það skynsamlega og losa heldur meira...
- 03.aug 2010, 23:18
- Spjallborð: Almennt spjall
- Umræða: Pajero '99 af 33" og á 35"
- Svör: 16
- Flettingar: 3561
Re: Pajero '99 af 33" og á 35"
Minn 98 bíll er með klossum frá Hellu að aftan og skrúfaður upp að framan. Hann er með litlu köntunum og það er aðeins búið að klippa úr frambrettunum og taka drullusokkafestingu að framan. Síðan voru settir venjulegir drullusokkar. Hann er síðan á 33 tommu sem koma hvergi nálægt og ég er viss um að...
- 12.maí 2010, 20:20
- Spjallborð: Vara og aukahlutir
- Umræða: BÍLSKÚRSSALA! dót til sölu!
- Svör: 12
- Flettingar: 4843
Re: BÍLSKÚRSSALA! heill patrol og fleira til sölu!
Sæll. Ertu með orginal gorma undan bílnum?
- 16.apr 2010, 19:53
- Spjallborð: Jeppinn minn
- Umræða: Chevjeró
- Svör: 34
- Flettingar: 10585
Re: Chevjeró
Þetta er skemmtilegt verkefni. Svo þetta er grind undan gen 1 með gen 2 boddí, er það ekki? Eru þessar grindur nánast eins?
- 15.apr 2010, 12:46
- Spjallborð: Ferlar og fjarskipti
- Umræða: Hvaða gps mæla menn með?
- Svör: 20
- Flettingar: 9994
Re: Hvaða gps mæla menn með?
Geri ráð fyrir að þú sért að tala um bíltæki, ég veit lítið um þau. Ég stefni að því að fá mér göngutæki með bílfestingum, Garmin Oregon 450 hugsa ég, það hefur verið að fá fína dóma.
- 08.apr 2010, 09:44
- Spjallborð: Ferðir og færð á fjöllum
- Umræða: Þórsmörk
- Svör: 3
- Flettingar: 1872
Re: Þórsmörk
Föstudaginn síðasta var mjög fallegt útsýni að hraunfossinum í Hvannárgili og að nýju eldstöðinni frá gönguleiðinni upp á Morrisheiði. Það var í raun óþarfi að fara alla leiðina upp, en samt yfir Kattarhryggi og aðeins lengra en það, í raun nánast upp að brekkunni upp á Heiðarhorn. Það þarf að sjá þ...
- 07.apr 2010, 23:10
- Spjallborð: Mitsubishi
- Umræða: Stærstu dekk sem ég kem undir með 35" köntum
- Svör: 2
- Flettingar: 1622
Re: Stærstu dekk sem ég kem undir með 35" köntum
Jú takk, þetta hjálpar, en þetta er ekki sama boddí og ekki sömu kantar. Ég er eins og fleiri með takmarkaða peninga milli handanna og ofan á allt annað eru stóru kantarnir ekki á dagskrá í bili. Ef þeir væru á dagskrá þá færu 38" beint undir en þeir kosta 100 þús og svo málningu.