Leit skilaði 304 niðurstöðum
- 30.okt 2010, 00:13
- Spjallborð: Kerrur, tjaldvagnar og fellihýsi
- Umræða: Stór kerra / lítill flutningavagn
- Svör: 1
- Flettingar: 1843
Stór kerra / lítill flutningavagn
Til sölu þessi stóra kerra eða litli flutningavagn, fer eftir því hvernig á það er litið. Upphaflega smíðaði ég hana sérstaklega fyrir lítinn dragga sem ég flutti inn, en hann er nú seldur. Kerran/vagninn er smíðuð 2007 og er mjög meðfærileg, með sturtum og með góða fjöðrun, maður veit varla af henn...
- 16.okt 2010, 00:24
- Spjallborð: Almennt spjall
- Umræða: Get ekki kommentað á f4x4
- Svör: 1
- Flettingar: 1197
Get ekki kommentað á f4x4
Getur einhver sagt mér hvers vegna ég get ekki kommentað á spjallinu hjá f4x4.is. Ég get skráð mig inn og sett inn auglýsingar, en ekki kommentað. Þarf að vera búið að borga félagsgjöldin til að kommenta? Jeppaspjallið hérna væri alveg nóg fyrir mig ef það dytti ekki alltaf svona mikið niður í nánas...
- 23.sep 2010, 12:58
- Spjallborð: Almennt spjall
- Umræða: Jarðarför á ferðafrelsi í Vonarskarði
- Svör: 33
- Flettingar: 12898
Re: Jarðarför á ferðafrelsi í Vonarskarði
Enn og aftur kemurðu þér undan að svara þessu Páll. Það, að bera fyrir sig einhverjum tómum frösum eins og "náttúran í fyrsta sæti", er að mínu viti alveg jafn ómerkilegt eins og að minnast á fatlað fólk og skerðingu á ferðafrelsi þeirra. Svæðið fyrir norðan og vestan Vatnajökul er að lang...
- 23.sep 2010, 10:26
- Spjallborð: Almennt spjall
- Umræða: Jarðarför á ferðafrelsi í Vonarskarði
- Svör: 33
- Flettingar: 12898
Re: Jarðarför á ferðafrelsi í Vonarskarði
Við skulum sjá til. Ég vildi bara fá að heyra hans persónulegu skoðun á þessu dæmi sem ég tók, í innlegginu hér á undan. Þetta er einföld spurning.
Kv, Stebbi Þ.
Kv, Stebbi Þ.
- 23.sep 2010, 10:18
- Spjallborð: Umhverfis- og hagsmunamál
- Umræða: Þú mátt ekki sofa hér! Komdu þér á tjaldsvæði
- Svör: 10
- Flettingar: 6178
Re: Þú mátt ekki sofa hér! Komdu þér á tjaldsvæði
Ákvað að breyta titlinum, var orðinn þreyttur á að lesa "drullaðu".
Kv, Stefán Þ.
Kv, Stefán Þ.
- 23.sep 2010, 08:45
- Spjallborð: Umhverfis- og hagsmunamál
- Umræða: Þú mátt ekki sofa hér! Komdu þér á tjaldsvæði
- Svör: 10
- Flettingar: 6178
Re: Þú mátt ekki sofa hér! Drullaðu þér á tjaldsvæði
Ég er alveg sammála þér Árni, en ég var að tala um undanþágu á akstri um slóða sem væri skyndilega lokað fyrir almennri umferð, en ekki til utanvegaaksturs. Að sjálfsögðu verður aldrei nein sátt um það að opinberir aðilar stundi utanvegaakstur, meðan almennum ferðalöngum er meinað að aka fyrirliggja...
- 22.sep 2010, 22:24
- Spjallborð: Almennt spjall
- Umræða: Jarðarför á ferðafrelsi í Vonarskarði
- Svör: 33
- Flettingar: 12898
Re: Jarðarför á ferðafrelsi í Vonarskarði
Nei, það fer varla nokkur að gera mál úr því upp á miðjum öræfum. En það er gott að einhver skilur hvað ég á við. Þú hlýtur þó að skilja muninn á einhverjum húsbíl sem fer varla yfir hraðahindrun og fjallabíl sem keyrir sjaldan á malbiki. Gerir þú engan greinarmun á eðli ferðamennsku hjá manni sem þ...
- 22.sep 2010, 21:30
- Spjallborð: Almennt spjall
- Umræða: Jarðarför á ferðafrelsi í Vonarskarði
- Svör: 33
- Flettingar: 12898
Re: Jarðarför á ferðafrelsi í Vonarskarði
Nú finnst mér þú vera að leggja mér orð í munn, Páll Ásgeir. Ég minntist aldrei á Vonarskarð í spurningu minni til þín, enda var ég bara að tala um rétt minn til þess að geta lagt bílnum mínum á einhverjum af þeim vegum/slóðum þjóðgarðsins sem ekki stendur til að loka, segjum t.d. einhversstaðar á m...
- 22.sep 2010, 19:52
- Spjallborð: Umhverfis- og hagsmunamál
- Umræða: Þú mátt ekki sofa hér! Komdu þér á tjaldsvæði
- Svör: 10
- Flettingar: 6178
Re: Þú mátt ekki sofa hér! Drullaðu þér á tjaldsvæði
Sælir. Ég hélt að það hefði verið fallið frá því að leyfa ferðaþjónustubílum að keyra slóða sem átti annars að loka fyrir almennri umferð ( var það ekki t.d.þannig með Heinabergsdal). Það væri að sjálfsögðu fráleitt og væri skólabókardæmi um gróft brot á jafnræðisreglu. Ég held að þetta sem þú ert a...
- 22.sep 2010, 18:09
- Spjallborð: Almennt spjall
- Umræða: Jarðarför á ferðafrelsi í Vonarskarði
- Svör: 33
- Flettingar: 12898
Re: Jarðarför á ferðafrelsi í Vonarskarði
Þetta verður að breytast í vitræna umræðu og menn verða að hætta að tala um "höfuðóvini" og annað í þeim dúr. Mér þætti það t.d. mjög slæmt ef Páll Ásgeir hættir að taka þátt í umræðunum hérna vegna þessa. Hann er göngugarpur og kannski að sumu leyti óformlegur fulltrúi göngumanna hér á sp...
- 22.sep 2010, 15:07
- Spjallborð: Almennt spjall
- Umræða: Jarðarför á ferðafrelsi í Vonarskarði
- Svör: 33
- Flettingar: 12898
Re: Jarðarför á ferðafrelsi í Vonarskarði
Ég verð að vera sammála Þórólfi (Tóta) að vissu leyti. Auðvitað mátti búast við því að einhverjar leiðir dyttu út. En það breytir því ekki að mér finnst þessi stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs vera að springa úr hroka, hún sýnir þeim sem gagnrýna hana, yfirlæti og lítilsvirðingu. Gagnrýnendur eru varla sv...
- 22.sep 2010, 13:52
- Spjallborð: Umhverfis- og hagsmunamál
- Umræða: Þú mátt ekki sofa hér! Komdu þér á tjaldsvæði
- Svör: 10
- Flettingar: 6178
Re: Þú mátt ekki sofa hér! Drullaðu þér á tjaldsvæði
Í 10.grein reglugerðar um Vatnajökulsþjóðgarð stendur: "Gestum þjóðgarðsins ber að nota skipulögð tjaldsvæði innan hans fyrir tjöld, tjaldvagna, fellihýsi, hjólhýsi og húsbíla. Fjarri skipulögðum tjaldsvæðum er fólki sem ferðast fótgangandi með allan farangur sinn þó heimilt að tjalda hefðbundn...
- 22.sep 2010, 11:14
- Spjallborð: Umhverfis- og hagsmunamál
- Umræða: Þú mátt ekki sofa hér! Komdu þér á tjaldsvæði
- Svör: 10
- Flettingar: 6178
Þú mátt ekki sofa hér! Komdu þér á tjaldsvæði
Er titillinn á þessum þræði sem ég er að byrja með, eitthvað sem ég má búast við að heyra frá einhverjum snata á vegum Vatnajökulsþjóðgarðs ? Ég sé fyrir mér, sjálfan mig ásamt fjölskyldunni á einhverjum afviknum, yndislegum stað á miðjum öræfum Íslands að gera okkur klár fyrir háttinn. Ef við förum...
- 30.maí 2010, 21:57
- Spjallborð: Umhverfis- og hagsmunamál
- Umræða: Verndaráætlun Vatnajökulsþjóðgarðs
- Svör: 7
- Flettingar: 5174
Re: Verndaráætlun Vatnajökulsþjóðgarðs
Sælir, Mig langar að fá frá ykkur frekari upplýsingar um þessar lokanir eða akstursbannsvæði eins og það er kallað á þessum uppdrætti sem ég hef verið að skoða. Ég fæ ekki betur séð að einu akstursbannsvæðin séu á Öræfajökli og í Kverkfjöllum (skástrikuð fjólublá svæði). Svæðið fráTungnaáröræfum að ...
- 08.apr 2010, 16:24
- Spjallborð: Almennt spjall
- Umræða: Björgunarsveitarmenn blessa akstur á hrauni
- Svör: 12
- Flettingar: 3327
Re: Björgunarsveitarmenn blessa akstur á hrauni
Þegar ég tala um mismunun, þá er ég ekki að ætlast til þess að mega keyra á hrauninu, það dytti mér aldrei í hug. Hvað þá að labba á hálfstorknuðu hrauninu. Ég bara þoli ekki þetta rugl með þennan 1 km bannradíus kringum gosið, svo fá einhverjir trúðar að keyra upp á hraunið með björgunarsveitina gl...
- 08.apr 2010, 12:36
- Spjallborð: Almennt spjall
- Umræða: Björgunarsveitarmenn blessa akstur á hrauni
- Svör: 12
- Flettingar: 3327
Björgunarsveitarmenn blessa akstur á hrauni
Var ekki björgunarsveit Kópavogs með í för þegar Top Gear gaurarnir keyrðu upp á hraunið. Voru þeir kannski að horfa í aðra átt þegar ekið var uppá hraunið ?? Mér var snúið við á Morinsheiði á Páskadag af björgunarsveitakrökkum þegar ég var ætlaði að ganga upp að gosinu, einnig var mér sagt að lögre...
- 01.apr 2010, 20:26
- Spjallborð: Vara og aukahlutir
- Umræða: WARN spil til sölu
- Svör: 0
- Flettingar: 919
WARN spil til sölu
Til sölu WARN spil (# 8274-50), í góðu lagi. Var á Chevy Suburban.
http://www.warn.com/truck/winches/src/M8274-50.shtml
Stefán S: 6910944 esjugrund17@simnet.is
http://www.warn.com/truck/winches/src/M8274-50.shtml
Stefán S: 6910944 esjugrund17@simnet.is
- 01.apr 2010, 01:49
- Spjallborð: Vara og aukahlutir
- Umræða: WARN spil til sölu
- Svör: 3
- Flettingar: 2343
WARN spil til sölu
Til sölu WARN spil (# 8274-50), í góðu lagi. Var á Chevy Suburban.
http://www.warn.com/truck/winches/src/M8274-50.shtml
Stefán S: 6910944 esjugrund17@simnet.is
http://www.warn.com/truck/winches/src/M8274-50.shtml
Stefán S: 6910944 esjugrund17@simnet.is
- 01.apr 2010, 01:48
- Spjallborð: Dekk og felgur
- Umræða: 16 x 10" álfelgur, átta gata
- Svör: 0
- Flettingar: 946
16 x 10" álfelgur, átta gata
Til sölu 16 x 10" Mickey Thompson álfelgur, átta gata (nýja deilingin). Líta vel út. Tilboð
Stefán S: 6910944 esjugrund17@simnet.is
Stefán S: 6910944 esjugrund17@simnet.is
- 01.apr 2010, 01:46
- Spjallborð: Dekk og felgur
- Umræða: 37" ProComp
- Svör: 0
- Flettingar: 1074
37" ProComp
Til sölu 4 stk 37" ProComp dekk. Tvö eru rúmlega hálfslitinn, eitt er 2/3 slitið og það fjórða á lítið eftir. Tilboð óskast.
Kveðja, Stefán S: 6910944 esjugrund17@simnet.is
Kveðja, Stefán S: 6910944 esjugrund17@simnet.is
- 24.mar 2010, 11:25
- Spjallborð: Almennt spjall
- Umræða: Gosstöðvar - Lokanir á vegum
- Svör: 40
- Flettingar: 11608
Re: Gosstöðvar - Lokanir á vegum
Jæja vinur, þú hefur ekkert minna til málanna að leggja þó þú sért ungur skólastrákur. Þetta snýst ekki bara um það að halda Íslendingum frá gosinu, heldur líka um þá óþolandi forræðishyggju sem tröllríður okkar samfélagi. Sterkasta vopn yfirvalda til að halda lýðnum í skefjum er það að segja þeim a...
- 24.mar 2010, 10:42
- Spjallborð: Almennt spjall
- Umræða: Gosstöðvar - Lokanir á vegum
- Svör: 40
- Flettingar: 11608
Re: Gosstöðvar - Lokanir á vegum
Einnig lokað inn í Þórsmörk. Nema fyrir starfsmenn Veðurstofunnar og börn þeirra og barnabörn, ásamt frændum, frænkum, ömmu og afa. Að ógleymdum fjölskylduvinum.
Kv, Stefán Þ.
ps. Magnús Ingi, ert þú starfmaður Almannavarna Ríkisins
Kv, Stefán Þ.
ps. Magnús Ingi, ert þú starfmaður Almannavarna Ríkisins
- 23.mar 2010, 12:07
- Spjallborð: Almennt spjall
- Umræða: Gosstöðvar - Lokanir á vegum
- Svör: 40
- Flettingar: 11608
Re: Gosstöðvar - Lokanir á vegum
Það er kannski bara spurning að fara austur, leggja bílnum hjá Skógafossi og labba uppeftir. Ég ætla ekki að missa af þeirri upplifun að sjá gosið í návígi. Fyrst að einhverjir Flugbjörgunarsveitaguttar mega leika sér í kringum sprunguna, þá hlusta ég ekki á svona kjaftæði.
Kv, Stefán Þórsson
Kv, Stefán Þórsson
- 23.mar 2010, 11:40
- Spjallborð: Almennt spjall
- Umræða: Gosstöðvar - Lokanir á vegum
- Svör: 40
- Flettingar: 11608
Re: Gosstöðvar - Lokanir á vegum
Það er rosalegur tvískinnungur í gangi hjá þeim sem stjórna aðgerðum þarna fyrir austan. Ég veit ekki betur en að fréttamenn séu alltaf að reyna að komast að sprungunni, en um leið eru aðrir stoppaðir við afleggjarann inn í Fljótshlíð. Svo eru vélsleðamenn orðnir að hetjum af því þeir komust að spru...