Leit skilaði 1157 niðurstöðum
- 12.des 2016, 16:28
- Spjallborð: Jeppinn minn
- Umræða: Nissan Patrol 46'' 4.2lc Haustverkinn Hafinn...
- Svör: 105
- Flettingar: 81475
Re: Nissan Patrol 46''- UPPFÆRSLA 5.10.16
Er ekki vesen að fá lykt inn í bílinn með sílsapúst? Einhver hlýtur ástæðan að vera að menn taka þetta næstum alltaf alla leið afturúr. Ég veit að lagalega þá má þetta koma út fyrir framan afturhjól farþegamegin. Ástæðan er hávaði, það munar miklu hvað heyrist meira inn í bíl þó pústið sé eins að ö...
- 08.des 2016, 12:47
- Spjallborð: Almennt spjall
- Umræða: Vantar Hjálp
- Svör: 5
- Flettingar: 3569
Re: Vantar Hjálp
Hann er með nokkra varahlutabíla, það eru allar líkur á að hann eigi það sem þig vantar, vertu bara þolinmóður
- 08.des 2016, 09:50
- Spjallborð: Almennt spjall
- Umræða: Vantar Hjálp
- Svör: 5
- Flettingar: 3569
Re: Vantar Hjálp
Ertu búinn að tala við þennan:
http://www.jeppaspjall.is/viewtopic.php?t=17739
http://www.jeppaspjall.is/viewtopic.php?t=17739
- 04.des 2016, 00:39
- Spjallborð: Vara og aukahlutir
- Umræða: Vantar í Land Cruiser 90 1997 +
- Svör: 1
- Flettingar: 1469
Re: Vantar í Land Cruiser 90 1997 +
Prófaðu að spjalla við þennan:
http://www.jeppaspjall.is/viewtopic.php?t=17739
Það standa nokkrir partabílar fyrir utan hjá honum
http://www.jeppaspjall.is/viewtopic.php?t=17739
Það standa nokkrir partabílar fyrir utan hjá honum
- 02.des 2016, 16:11
- Spjallborð: Barnaland
- Umræða: Burt með Diesel
- Svör: 9
- Flettingar: 15809
Re: Burt með Diesel
E85 Etanolið er blandað með 25% bensíni í USA á veturna í stað 15% til að auðvelda gangsetningu, en maður getur aukið þjöppuna verulega á E85 sem þýðir moreomph :)
En það er ekki keyrt á hreinu etanóli skilst mér
En það er ekki keyrt á hreinu etanóli skilst mér
- 24.nóv 2016, 23:57
- Spjallborð: Almennt spjall
- Umræða: Þrýstirofar
- Svör: 5
- Flettingar: 3252
Re: Þrýstirofar
Danfoss er með úrval, en annars keypti ég einfaldan pung í Arctic trucks fyrir þetta, ég man ekki nákvæmlega hvað sviðið var á honum
- 22.nóv 2016, 23:04
- Spjallborð: Jeppinn minn
- Umræða: Úrhleypibúnaður
- Svör: 2
- Flettingar: 2980
Re: Úrhleypibúnaður
Ef það getur runnið milli dekkja bakvið kranann (þ.e. ef það er bara einn krani fyrir öll dekkin) rennur úr þeim dekkjum sem meiri þyngd hvílir á eins og t.d. neðri dekkjunum í hliðarhalla yfir í hin sem minni þyngd hvílir á. Ef loftið getur runnið á milli endar alltaf með því að dekkin þrýstingsjaf...
- 09.nóv 2016, 15:00
- Spjallborð: Almennt spjall
- Umræða: Dekkjaskurður með lofthamri...... ?
- Svör: 11
- Flettingar: 5553
Re: Dekkjaskurður með lofthamri...... ?
Ég var með góðan dekkjahníf sem var alger snilld að nota til að skera í munstrið, en þegar ég fór í hliðarkubbana vildi blaðið ofhitna, gúmmíið brenna við það og hnífurinn þarmeð bitlaus. Þegar ég var búinn að sjá hvernig væri best að gera þetta með dúkahnífnum, gekk það mun hraðar fyrir sig og áfer...
- 07.nóv 2016, 22:35
- Spjallborð: Almennt spjall
- Umræða: Dekkjaskurður með lofthamri...... ?
- Svör: 11
- Flettingar: 5553
Re: Dekkjaskurður með lofthamri...... ?
Ég skar hliðarkubbana af 41" Irok með dúkahníf og WD-40 sem smurningu, þetta var mér bent á eftir að ég nefndi multisögina við menn hérna á Króknum
Þetta var smá puð, en MUN minna vesen en að nota dekkjahnífinn í þetta
Þetta var smá puð, en MUN minna vesen en að nota dekkjahnífinn í þetta
- 07.nóv 2016, 22:27
- Spjallborð: Almennt spjall
- Umræða: Fyrir þá sem langar í diesel vél en eru tegundarstíflaðir :)
- Svör: 7
- Flettingar: 4036
Re: Fyrir þá sem langar í diesel vél en eru tegundarstíflaðir :)
Já, þetta er smá skildingur, en menn eru líka að fá nýja vél. Meðan Toyota rokkarnir eru seldir á hvað? 200-400 þús, eknir um 200.000km? Eftir að hafa skoðað tölurnar sem Þórir setti inn, varð ég fyrir verulegum vonbrigðum. 3.0 vélin sem VM motori selur í 1500 raminn er í kringum 240-260 hö, man það...
- 03.nóv 2016, 15:42
- Spjallborð: Almennt spjall
- Umræða: Fyrir þá sem langar í diesel vél en eru tegundarstíflaðir :)
- Svör: 7
- Flettingar: 4036
Fyrir þá sem langar í diesel vél en eru tegundarstíflaðir :)
Núna býður Cummins uppá 2,8 lítra dísil vélar klárar til ísetningar:
http://www.trucktrend.com/events/sema-auto-show/1610-cummins-reveals-repower-diesel-crate-engine-program-at-sema-2016/
http://www.trucktrend.com/events/sema-auto-show/1610-cummins-reveals-repower-diesel-crate-engine-program-at-sema-2016/
- 25.okt 2016, 19:36
- Spjallborð: Breytingar, viðhald og viðgerðir
- Umræða: Bead lock kitt frá USA
- Svör: 5
- Flettingar: 2470
Re: Bead lock kitt frá USA
Þessi kit sem ég hef skoðað hefur öll vantað miðjustýringuna fyrir dekkið, sem á líka að hindra að gjörðin bogni inná við þegar hún er hert að dekkinu
- 11.okt 2016, 18:59
- Spjallborð: Breytingar, viðhald og viðgerðir
- Umræða: hvar er best að kaupa hedd í 90 cruiser
- Svör: 10
- Flettingar: 4210
Re: hvar er best að kaupa hedd í 90 cruiser
Ég keypti hedd á Tucson jeppling CRDi frá kína AliExpress, kostaði 79.000 kr allt saman með ventlum og knastás, strípað hedd hér heima var eitthvað 300. plús Gæðin á heddinu voru bara sambærileg því sem ég losaði úr bílnum, ekki að sjá að neinn munur væri á þeim, þannig þetta er kannski eitthvað se...
- 06.okt 2016, 19:30
- Spjallborð: Almennt spjall
- Umræða: Hvernig vetrardekk undir fólkbíl
- Svör: 10
- Flettingar: 3163
Re: Hvernig vetrardekk undir fólkbíl
Ég mæli með skelja dekkjunum frá Benna, ég er með þau undir gömlum E320 4matic benz, endast vel og mjög gott grip í snjó. Ég keyri á þeim allt árið, sýnist að ég nái um 2 árum út úr þessum gangi, en næði örugglega amk 3 ef aksturstíllinn hjá mér og frúnni spændi ekki alltaf upp kantana á framdekkjun...
- 05.okt 2016, 18:07
- Spjallborð: Almennt spjall
- Umræða: Endurnýting kælivökva.
- Svör: 2
- Flettingar: 1573
Re: Endurnýting kælivökva.
Ef þú hleypir þessu út í loftið þarf að lottæma kerfið áður en það er fyllt aftur, það þarf reyndar í öllum tilfellum ef kerfið er opnað. Þó það sé ekki beint vinsælt að sleppa þessu út, þá eru orugglega margir sem gera það, þarft bara að vera með góða loftræstingu og passa að reykja ekki nálægt þes...
- 28.aug 2016, 09:31
- Spjallborð: Breytingar, viðhald og viðgerðir
- Umræða: Smá Tæknihorn: Felgur með kantlás að hætti hússins.
- Svör: 11
- Flettingar: 9235
Re: Smá Tæknihorn: Felgur með kantlás að hætti hússins.
Þetta er frumlegt, ég hefði einmitt útilokað svona system útaf þéttingunni með boltunum, en þú hefur greinilega náð að leysa það :)
- 28.aug 2016, 07:05
- Spjallborð: Breytingar, viðhald og viðgerðir
- Umræða: Afgashitavandamál í Patrol (2.8)
- Svör: 28
- Flettingar: 7660
Re: Afgashitavandamál í Patrol (2.8)
Þessi vél verður ekki háþrýstari við plönun, heddið er flatt, og það litla sem fer af forbrunahólfinu er svo lítið að það myndi sennilega ekki mælast þó maður þjöppumældi fyrir og eftir
- 25.aug 2016, 10:02
- Spjallborð: Dekk og felgur
- Umræða: 16" Stálfelgur 5 gata stóra
- Svör: 8
- Flettingar: 2929
Re: 16" Stálfelgur 5 gata stóra
Þú kemur ekki dekkjunum uppá felguna ef þú breikkar tunnuna á stærri/ytri hlutanum
- 25.aug 2016, 09:59
- Spjallborð: Breytingar, viðhald og viðgerðir
- Umræða: Heppileg vél í Dodge Van
- Svör: 8
- Flettingar: 3204
Re: Heppileg vél í Dodge Van
Hvað er sú vél stór í lítrum og hverju skilar hún í hestöflum?
- 25.aug 2016, 09:58
- Spjallborð: Breytingar, viðhald og viðgerðir
- Umræða: Afgashitavandamál í Patrol (2.8)
- Svör: 28
- Flettingar: 7660
Re: Afgashitavandamál í Patrol (2.8)
Ef ekkert breyttist nema afgashitinn og engu var breytt nema fara í heddið á sínum tíma, er ég ennþá á því að olíutíminn sé of seinn hjá þér
- 23.aug 2016, 19:09
- Spjallborð: Dekk og felgur
- Umræða: 16" Stálfelgur 5 gata stóra
- Svör: 8
- Flettingar: 2929
Re: 16" Stálfelgur 5 gata stóra
Ég get ekki sagt að þær henti vel til breikkunar þar sem felgumiðjan er fyrir utan mjóasta hlutann í tunnunni sem alltaf breikkaður, og því ekki hægt að breikka þær útávið nema skipta um miðju
- 22.aug 2016, 18:33
- Spjallborð: Breytingar, viðhald og viðgerðir
- Umræða: Smá tæknihorn: Millikassi sem er áhugaverður fyrir breytingar
- Svör: 39
- Flettingar: 18604
Re: Smá tæknihorn: Millikassi sem er áhugaverður fyrir breytingar
En varðandi Rover millikassann, er það rétt skilið hjá mér að öxullinn sem gengur inní kassann þurfi að vera berandi fyrir eitthvað inní kassanum? Ég skildi ekki alveg hvað Ólafur var að tala um með smíðina á millistykkinu En miðað við allt sem ég hef lesið hér að ofan þá er þessi millikassi hrein ...
- 21.aug 2016, 15:48
- Spjallborð: Breytingar, viðhald og viðgerðir
- Umræða: Smá tæknihorn: Millikassi sem er áhugaverður fyrir breytingar
- Svör: 39
- Flettingar: 18604
Re: Smá tæknihorn: Millikassi sem er áhugaverður fyrir breytingar
Þetta fer náttúrulega eftir því hvernig bil er verið að ræða um en þetta sjálfskiptingardæmi sem Elli nefnir ætti alveg að vera mögulegt. Ég er með 2 R150 kassa í hiluxinum og 4,56 hlutföll, fljótlega eftir að ég setti kassana í dró ég gamlan rússajeppa upp eldri veginn yfir Hólmahálsinn frá Eskifir...
- 20.aug 2016, 06:10
- Spjallborð: Breytingar, viðhald og viðgerðir
- Umræða: Smá tæknihorn: Millikassi sem er áhugaverður fyrir breytingar
- Svör: 39
- Flettingar: 18604
Re: Smá tæknihorn: Millikassi sem er áhugaverður fyrir breytingar
Þetta er áhugaverð pæling með Rover kassann. Hvernig er framendinn á honum, með það í huga að mixa hann við aðra kassa en orginal? Í minn bíl setti ég auka gírkassa, svo ég skipti bara um gír á fremri kassanum eftir aðstæðum og dekkjastærð, en ég keyri bílinn bara á skurðarskífum á sumrin, 225/75 15...
- 08.jún 2016, 18:52
- Spjallborð: Almennt spjall
- Umræða: Spyrnu keppni á Akureyri/ meiriháttar gaman
- Svör: 3
- Flettingar: 1846
Re: Spyrnu keppni á Akureyri/ meiriháttar gaman
Sævar Örn wrote:https://www.youtube.com/watch?v=XZW09N-nscw
mundu bara prjóngrindina
Er ekki nóg að hann sleppi því að færa húsið aftar ef hann keyrir sjálfur?
- 08.jún 2016, 18:49
- Spjallborð: Almennt spjall
- Umræða: Fluid Film
- Svör: 5
- Flettingar: 2895
Re: Fluid Film
Leitaðu bara aðeins, það á að vera önnur umræða um Fluid film hérna
- 03.maí 2016, 12:26
- Spjallborð: Breytingar, viðhald og viðgerðir
- Umræða: Afgashitavandamál í Patrol (2.8)
- Svör: 28
- Flettingar: 7660
Re: Afgashitavandamál í Patrol (2.8)
Ef heddið eða blokkin voru plönuð breytist lengdin milli sveifaráss og knastáss og þar með tíminn á RD28 vélunum (knastás og olíuverk verða svolítið á eftir), ég þurfti allavega að snúa olíuverkinu aðeins þegar það var planaður 1 millimeter af heddinu á Laurelnum hjá mér, ég tók aðallega eftir minna...
- 23.apr 2016, 23:52
- Spjallborð: Breytingar, viðhald og viðgerðir
- Umræða: Bella 2 í fæðingu uppfært 09.05.17 verki lokið
- Svör: 103
- Flettingar: 29470
Re: Bella 2 í fæðingu
Ég er búinn að keyra Hiluxinn minn með 2 gírkassa síðan 2009, eftir smá byrjunarvesen hefur þetta virkað vandamála laust, ég skipti um fremri kassann eftir rúmlaga ár, en sennilega var ekkert að honum, olían hvarf inná aftari kassann, ég leysti það mál með því að setja glussarör á milli áfyllingarta...
- 06.apr 2016, 23:42
- Spjallborð: Almennt spjall
- Umræða: Dekkjakaup
- Svör: 19
- Flettingar: 6509
Re: Dekkjakaup
Ég skoðaði þetta með 41" Irok gang um daginn, ég gat fengið hann vel yfir 100 þús ódýrari frá usa gegnum shopusa en verðið var frá n1, meira að segja 5 dekk gegnum shopusa voru ódýrari en 4 hjá N1
- 04.apr 2016, 19:26
- Spjallborð: Almennt spjall
- Umræða: LC 120. Bensín dísel. Ending á vélum
- Svör: 9
- Flettingar: 4090
Re: LC 120. Bensín dísel. Ending á vélum
Sogportin í heddunum á dísilvélunum þrengjast með tímanum vegna EGR kerfisins, félagi minn tók svona vél sem stóð til að föndra í 90 cruiser og hreinsaði drulluna í burtu. ég er bara ekki viss hvort sú vél er kominn í notkun
- 30.mar 2016, 23:03
- Spjallborð: Breytingar, viðhald og viðgerðir
- Umræða: Upphækun á klafa 4runner
- Svör: 8
- Flettingar: 5189
Re: Upphækun á klafa 4runner
Ef þið setjið klossa milli efri spindilkúlu og efri klafa án þess að sikka neðri klafann fara dekkin að vísa inn að neðan þar sem neðri klafinn fer að halla meira en sá efri
- 30.mar 2016, 22:58
- Spjallborð: Almennt spjall
- Umræða: AT dekk. Gæðaspurning ?
- Svör: 15
- Flettingar: 5805
Re: AT dekk. Gæðaspurning ?
Í þessi dekk hefur aldrei komið annað en loft svo ég viti. Sakir slæmrar heilsu hjá eigandanum hefur bíllinn verið lítið keyrður og ekki farið í fjallaferðir. Skrítið að á tímum allskonar snákaolíutöfraefna hefur aldrei neitt sést sem á að auka endingu og minnka sprungur í dekkjagúmmíi. Það er til,...
- 30.mar 2016, 17:32
- Spjallborð: Breytingar, viðhald og viðgerðir
- Umræða: Mig suða - Gas
- Svör: 15
- Flettingar: 6851
Re: Mig suða - Gas
Mison 18 og Fogon er því sem næst sama gasið, eini munurinn er að Mison 18 átti að vera hollara fyrir suðumanninn, en það var selt á þeim forsendum í stað Fogon CO2 frussar meira, en að öðru leiti finn ég lítinn mun á því og mison 18 og Fogon Mison 2 og Mison Ar gera suðuna kaldari svo hún flýtur ve...
- 30.mar 2016, 09:18
- Spjallborð: Breytingar, viðhald og viðgerðir
- Umræða: Mig suða - Gas
- Svör: 15
- Flettingar: 6851
Re: Mig suða - Gas
Þarna ætla ég að leyfa mér að vera ekki sammála þér
- 30.mar 2016, 09:17
- Spjallborð: Almennt spjall
- Umræða: AT dekk. Gæðaspurning ?
- Svör: 15
- Flettingar: 5805
Re: AT dekk. Gæðaspurning ?
Einhverntíman heyrði ég að kolsýran skemmi gúmmíið, en það ætti að koma innan frá og dekkið fara að leka, frekar en að kross springa utanfrá
- 12.mar 2016, 16:08
- Spjallborð: Almennt spjall
- Umræða: Frágangur eftir rybætningu
- Svör: 3
- Flettingar: 2346
Re: Frágangur eftir rybætningu
Ég myndi nota epoxy grunn beggja vegna, þegar hann er búinn að harðna myndi ég svo bera "kalt asfalt" á það sem snýr út. Þetta er hálfgerð tjara með trefjum í og er víst ætlað í þakviðgerðir/frágang, Við pabbi höfum notað þetta þegar við erum að ryðbæta og sýnist þetta vera skásta ryðvörni...
- 11.mar 2016, 19:26
- Spjallborð: Breytingar, viðhald og viðgerðir
- Umræða: vantar upplýsingar um v8 í hilux
- Svör: 11
- Flettingar: 3979
Re: vantar upplýsingar um v8 í hilux
Voru ekki til trefjaplast mót einhversstaðar af lengri stæðu á 4runner?,
ef þetta er eldri bíll en 95 ætti það að passa
ef þetta er eldri bíll en 95 ætti það að passa
- 01.mar 2016, 18:28
- Spjallborð: Almennt spjall
- Umræða: Hljóðeinangrun
- Svör: 14
- Flettingar: 3671
Re: Hljóðeinangrun
Ertu þá að pæla í Armaflex eða svipuðu?
- 01.mar 2016, 15:36
- Spjallborð: Breytingar, viðhald og viðgerðir
- Umræða: Dekk rekast í dempara í beygju.
- Svör: 12
- Flettingar: 4207
Re: Dekk rekast í dempara í beygju.
Ég er búinn að keyra síðan 2009 með svipaða spacera að framan vandamálalaust:
http://www.ebay.com/itm/4-PCs-of-Aluminium-Wheel-Spacers-6-Lug-6x139-7-30mm-M12X1-5-for-Toyota-Hilux-/271588709871?hash=item3f3bf2d5ef:g:JQoAAOSw-jhT~Y4x&vxp=mtr
http://www.ebay.com/itm/4-PCs-of-Aluminium-Wheel-Spacers-6-Lug-6x139-7-30mm-M12X1-5-for-Toyota-Hilux-/271588709871?hash=item3f3bf2d5ef:g:JQoAAOSw-jhT~Y4x&vxp=mtr
- 26.feb 2016, 10:10
- Spjallborð: Breytingar, viðhald og viðgerðir
- Umræða: Mig suða - Gas
- Svör: 15
- Flettingar: 6851
Re: Mig suða - Gas
Ég er búinn að nota slökkvitæki (kolsýru) síðan 2009 án vandræða, það þarf bara að skipta um ró á þrýstijafnaranum, ég notaði róna sem hélt slöngunni á slökkvitækinu, boraði gatið bara aðeins út. Ég er bara með rafstuðu pinna sem ég beygði utanum handfangið til að halda því opnu, renni honum svo af ...