Leit skilaði 124 niðurstöðum

frá kaos
02.feb 2024, 21:51
Spjallborð: Jeppinn minn
Umræða: GMC Sierra Loka metrarnir.. samantekt"
Svör: 73
Flettingar: 39791

Re: GMC Sierra loksins ryðlaus!

Er þetta verkefni ekki komið á heilmálunarstigið fyrir allnokkru hvort eð er? Og já, virkilega flottur litur!

--
Kveðja, Kári.
frá kaos
10.nóv 2023, 13:15
Spjallborð: Ferlar og fjarskipti
Umræða: loftnetslagnir
Svör: 9
Flettingar: 1654

Re: loftnetslagnir

Ég var (og er) ekki alveg viss um hversu vel þetta virkar, svo ég gúglaði örlítið "galvanic corrosion", sem er það sem gerist þegar mismunandi málmar snertast. Ef ég skil þessa wikipedia grein rétt ( https://en.wikipedia.org/wiki/Galvanic_corrosion ) þá er reyndar nikkel verra en rústfrítt...
frá kaos
09.nóv 2023, 12:54
Spjallborð: Ferlar og fjarskipti
Umræða: loftnetslagnir
Svör: 9
Flettingar: 1654

Re: loftnetslagnir

Þeir málmnipplar sem rafvirkjar nota (t.d. https://www.reykjafell.is/vorur/5b755d4 ... m-m-16-4-8 ) eru reyndar yfirleitt nikkelhúðaður kopar eða messing, sem er kannski skárra?

--
Kveðja, Kári.
frá kaos
29.des 2022, 10:59
Spjallborð: Vara og aukahlutir
Umræða: Ó.E. hægra nafi í Trooper.
Svör: 0
Flettingar: 2837

Ó.E. hægra nafi í Trooper.

Sælt veri fólkið. Ég lenti í því á dögunum að það hrundi hjá mér framhjólalega með þvílíkum tilþrifum að bæði nafstúturinn og leguhúsið skemmdust, ásamt því að öxullnn brotnaði. Það sem mig vantar er: Nafstúturinn, sem er samsteyptur við "hnúann" á bak við. Leguhúsið sem boltast við bremsu...
frá kaos
06.nóv 2022, 15:10
Spjallborð: Almennt spjall
Umræða: Loftþrýstingsmælir
Svör: 2
Flettingar: 1182

Re: Loftþrýstingsmælir

Þú getur fengið "venjulegan" mæli (þessir með stautnum sem skýst út og sýnir þrýstinginn) sem er kvarðaður upp í 20 pund, og nothæfur niður í 2. Fæst hjá Arctic Trucks og örugglega flestum öðrum jeppabúllum. Svo eru náttúrulega digital mælar, en mín reynsla er að batteríið í þeim deyji all...
frá kaos
16.okt 2021, 18:29
Spjallborð: Vefurinn - hugmyndir, ábendingar og tilkynningar
Umræða: Blokkeruð IP tala?
Svör: 3
Flettingar: 11454

Re: Blokkeruð IP tala?

Skiptir ekki máli hvort er, enda nær sama tölva með sama browser og sama bookmark sambandi ef ég tengi hana í gegnum hotspot á símanum, en ekki á sinni venjulegu nettengingu. Mjög skrítið.

--
Kveðja, Kári.
frá kaos
16.okt 2021, 00:52
Spjallborð: Vefurinn - hugmyndir, ábendingar og tilkynningar
Umræða: Blokkeruð IP tala?
Svör: 3
Flettingar: 11454

Blokkeruð IP tala?

Sælir, Ég er ekki viss hvort að þetta er rétti staðurinn fyrir þetta, en ég næ engu sambandi við jeppaspjallið (time out) ef ég fer út um mína venjulegu gátt, (ytri IP tala 213.181.119.8), en næ sambandi í gegnum gemsa. Hefur IP talan mín verið blokkeruð og þá af hverju? Ég veit engar syndir upp á m...
frá kaos
10.okt 2021, 21:11
Spjallborð: Almennt spjall
Umræða: Grand Cherokee breytingar.
Svör: 3
Flettingar: 2664

Re: Grand Cherokee breytingar.

Það er frekar bjartsýnt að ætla að sleppa því að færa afturhásinguna og á sama tíma gera þetta sómasamlega. Það var það sem ég óttaðist :-( Auðveldasta leiðin er að nota tank úr ZJ og smíða festingar fyrir hann. Er ekki rétt skilið hjá mér að WJ sé með varadekkið undir gólfinu, ofan á bensíntanknum...
frá kaos
10.okt 2021, 13:56
Spjallborð: Almennt spjall
Umræða: Grand Cherokee breytingar.
Svör: 3
Flettingar: 2664

Grand Cherokee breytingar.

Jæja, nú langar mig að leita til reynsluboltanna hérna um góð ráð. Þannig er að hann Flintstone* minn er lagstur banaleguna, eftir að hafa fengið akstursbann vegna sundurryðgaðs burðarbita. Þetta er/var fyrstu kynslóðar (ZJ) Grand Cherokee sem ég keypti 38" breyttan eftir auglýsingu hér á spjal...
frá kaos
13.sep 2021, 18:50
Spjallborð: Dekk og felgur
Umræða: ÓE 1 stk. 37x12,5 Nankang
Svör: 0
Flettingar: 2965

ÓE 1 stk. 37x12,5 Nankang

ÓE 1 stk. 37x12,5 Nankang (eða svipuðu mynstri) á 15 tommu felgu, í þokkalegu ástandi.

--
Kveðja,
Kári, s. 8600663
frá kaos
05.des 2020, 22:00
Spjallborð: Suzuki
Umræða: Sjáĺfskifting föst í park í frosti
Svör: 8
Flettingar: 7734

Re: Sjáĺfskifting föst í park í frosti

EArna wrote:(NB það á ekki að vera læsingin, fyrst bíllinn kemst úr parki þegar hann er nógu heitur)


Nema það sé raki í læsingunni sem frýs. Ég geri ráð fyrir að þú kveikir á miðstöðinni meðan þú lætur hann hitna?

--
Kveðja, Kári.
frá kaos
05.des 2020, 07:13
Spjallborð: Suzuki
Umræða: Sjáĺfskifting föst í park í frosti
Svör: 8
Flettingar: 7734

Re: Sjáĺfskifting föst í park í frosti

Mér dettur líka í hug læsingin sem á að hindra að skipt sé úr park nema staðið sé á bremsunni. Hún er yfirleitt við stöngina og gæti þurft að opna innréttingu til að komast að henni. Hins vegar er oft smá tappi sem er hægt að fjarlægja og pota skrúfjárni inn fyrir til að komast framhjá henni; ætti a...
frá kaos
29.maí 2020, 08:54
Spjallborð: Breytingar, viðhald og viðgerðir
Umræða: lógír í disel 4runner95?
Svör: 4
Flettingar: 3916

Re: lógír í disel 4runner95?

En þarf ekki hvort eð er að stytta/lengja drifsköft við svona tilfæringar, og er þá ekki einfalt að skipta um endana í leiðinni? Tek fram að ég hef ekkert vit á þessu og er bara að velta fyrir mér möguleikum.
frá kaos
10.okt 2019, 21:35
Spjallborð: Almennt spjall
Umræða: Kínalásar
Svör: 8
Flettingar: 5699

Re: Kínalásar

Takk fyrir upplýsingarnar, allir saman. Já, þessir lásar virðast alveg horfnir af Ebay, og reyndar fann ég ekki heldur þá týpu sem mig vantaði (RD102) á Aliexpress, en hann var til á Alibaba. McKinstry á hann líka, og á verði sem mér sýnist svipað og að panta frá Kína, svo það er eitthvað sem væri v...
frá kaos
03.okt 2019, 21:58
Spjallborð: Almennt spjall
Umræða: Kínalásar
Svör: 8
Flettingar: 5699

Kínalásar

Menn hafa nefnt kínverska loftlása hér á spjallinu sem áhugaverðan möguleika. Er einhver sem getur sagt mér hver selur þá / framleiðanda / leitarorð / aðrar upplýsingar.
Ég fann einn ebay hlekk í gömlum þræði, en hann er dauður núna, líklega úr elli.

--
M.b.k., Kári.
frá kaos
03.okt 2019, 21:53
Spjallborð: Vara og aukahlutir
Umræða: Óska eftir loftlás og hlutföllum í Dana 35
Svör: 1
Flettingar: 2137

Óska eftir loftlás og hlutföllum í Dana 35

Nánar tiltekið f. Grand Cherokee '93 árgerð. Original öxlar eru 27 rillu, en 30 rillu lás kæmi líka til greina; ég þarf þá bara að endurnýja öxlana líka.
Einnig vantar mig 4,88 hlutföll, ef einhver lumar á slíku í góðu ástandi.

--
M.b.k.,
Kári Össurarson
s. 8600663
frá kaos
06.jún 2019, 23:14
Spjallborð: Breytingar, viðhald og viðgerðir
Umræða: Lengja hraðamælabarka
Svör: 9
Flettingar: 5429

Re: Lengja hraðamælabarka

Ég er búin að hafa samband við Samgöngustofu varðandi það að nota Gps sem hraðamælir, þar var svarið NEI. Skiljanlega. GPS dettur t.d. út í jarðgöngum. Svo eru þeir hjá Samgöngustofu sjálfsagt viðkvæmir fyrir öllum fyrirspurnum varðandi hraðamæla og kílómetrateljara þessa dagana :-) Er jafnvel einh...
frá kaos
11.maí 2019, 22:46
Spjallborð: Almennt spjall
Umræða: adidas slides
Svör: 2
Flettingar: 2321

Spammity...

Ah, og um leið og ég var búinn að pósta fann ég takkann. Það er upphrópunarmekið efst í póstinum.

--
Kveðja, Kári.
frá kaos
11.maí 2019, 22:44
Spjallborð: Almennt spjall
Umræða: adidas slides
Svör: 2
Flettingar: 2321

Spammity, spammity, spam, spam, spam

Vinur vor BertonLucas virðist vera hér í þeim eina tilgangi að kúka í laugina. Það væri vel þegið ef einhver með réttindi til vildi þrífa upp óþverrann.
Hvernig var það annars, var ekki einhver "tilkynna póst" takki hérna? Eða er ég að rugla saman spjallborðum?

--
Kveðja, Kári.
frá kaos
20.mar 2019, 18:01
Spjallborð: Almennt spjall
Umræða: Breyting á reglugerð, umsagnir
Svör: 9
Flettingar: 7333

Re: Reyting á reglugerð, umsagnir

Sammála Jóni með að ég sé enga galla við þessar breytingar. Ég vil samt þakka Ástmari fyrir að vekja athygli á þessu. Það er alltaf þess virði að fylgjast með yfirvofandi breytingum á lagaumhverfinu.

--
Kveðja, Kári.
frá kaos
13.jan 2019, 08:47
Spjallborð: Breytingar, viðhald og viðgerðir
Umræða: Grand Cherookee 2009
Svör: 6
Flettingar: 4102

Re: Grand Cherookee 2009

Þekki þennan kassa ekki, en ég fann service manual fyrir hann, ef það skyldi koma að einhverju gagni (sýnir allavega hvernig hann er uppbyggður): http://zinref.ru/avtomobili/Jeep/070_10_00_Jeep_Grand_Cherokee_WK_2005_year_manual_ENGLISH/1551.htm

--
Kveðja, Kári.
frá kaos
29.okt 2018, 14:18
Spjallborð: Jeppinn minn
Umræða: Gamall Ram. uppgerð og breytingar
Svör: 377
Flettingar: 225062

Re: Gamall Ram

íbbi wrote:Já maður ee búinn að leika hinu ýmsu iðnaðamenn síðustu mánuði, og blóta mikið


Það væri nú ekki sannfærandi leikur öðruvísi :-)

--
Kveðja, Kári.
frá kaos
04.aug 2018, 11:10
Spjallborð: Breytingar, viðhald og viðgerðir
Umræða: Unimog tracktor 406/Örkin
Svör: 89
Flettingar: 39357

Re: Unimog tracktor 406/Örkin

Ef ég lengi hann á beina kaflanum um segjum 150 cm þarf ég þá að lengja skaftið um það sama eða meira þar sem það hallar? Ögn minna, nema þú sért líka að hækka bílinn á fjöðrum. Mín fyrstu viðbrögð voru reyndar á hinn veginn, en þegar ég fór að reikna örlítið áttaði ég mig á hugsanaskekkjunni. Ef þ...
frá kaos
13.júl 2018, 00:49
Spjallborð: Suzuki
Umræða: Suzuki Grand Vitara 2006
Svör: 2
Flettingar: 9747

Re: Suzuki Grand Vitara 2006

Eftir smá gúgl: Vélin mun heita J20A og er með tímakeðju.

--
Kveðja, Kári.
frá kaos
26.jan 2018, 23:15
Spjallborð: Almennt spjall
Umræða: Stýrisdæla sem Glussadæla
Svör: 9
Flettingar: 4464

Re: Stýrisdæla sem Glussadæla

En, hvernig væri dæla sem er ætluð í nákvæmlega þetta? T.d. https://www.agrilineproducts.com/parts/hydraulic/hydraulic-pump-21334.html sem er ætluð í t.d. IH B275, sem á sínum tíma var í beinni samkeppni, og sambærilegur, við MF 35. Kostar þar 114 evrur + flutning. Í Nallanum var hún reyndar með tan...
frá kaos
22.jan 2018, 21:42
Spjallborð: Almennt spjall
Umræða: vandræði með miðstöðvarblásara
Svör: 3
Flettingar: 2096

Re: vandræði með miðstöðvarblásara

Eins og Járni sagði þá er þetta nokkuð örugglega viðnámið/mótstaðan við blásarann. Þetta gúgl gæti kannski hjálpað: https://www.google.is/search?hl=en-IS&q=1997+ford+expedition+blower+resistor Ef þetta er stiglaus og/eða tölvustýrður blásari gæti málið verið flóknara. -- Kveðja, Kári.
frá kaos
12.jan 2018, 13:19
Spjallborð: Almennt spjall
Umræða: Er þetta nothæf tregðulæsing??
Svör: 18
Flettingar: 7195

Re: Er þetta nothæf tregðulæsing??

Eins og ég skil þetta, og það er rétt að taka fram að ég er enginn sérfræðingur í þessum læsingum, þá virka þær eins og nokkurskonar einstefnukúplingar eða "skrall" við hvort hjól. Í venjulegum akstri beint áfram snúast bæði hjólin jafn hratt, og taka jafnt á. Í beygju vill ytra hjólið snú...
frá kaos
08.jan 2018, 21:17
Spjallborð: Breytingar, viðhald og viðgerðir
Umræða: hleðsla rafgeima
Svör: 2
Flettingar: 1965

Re: hleðsla rafgeima

Ég þurfti nú að googla pbca. Það ku vera viðhaldsfríir rafgeymar. Alltaf lærir maður eitthvað nýtt. Annars er wet þessir klassísku bílageymar með áfyllingartöppum, gel eru "þurrir" blýsýrugeymar (gjarnan notaðir í varaaflgjöfum), og agm (absorbed glass mat) eru önnur útgáfa af þurrgeymum. ...
frá kaos
24.des 2017, 09:56
Spjallborð: Suzuki
Umræða: Grand Vitara `99 framdrif
Svör: 5
Flettingar: 11156

Re: Grand Vitara `99 framdrif

Nema það sé búið að breyta því þá eru "lokurnar" innbyggðar í framdrifið. Þetta er loftstýrt (pínulítil loftpressa innan við framstuðarann), og tengir kambhjólið við mismunadrifið þegar bíllinn er settur í fjórhjóladrif. Þess á milli snýst sjálft mismunadrifið með framhjólunum, en ekki kam...
frá kaos
03.des 2017, 18:23
Spjallborð: Ferlar og fjarskipti
Umræða: GPS Ferlasafn
Svör: 9
Flettingar: 13036

Re: GPS Ferlasafn

Þetta er mjög góð hugmynd. Ég vildi bara að ég hefði eitthvað vitrænt að leggja í púkkið, en því miður hefur maður verið alltof latur við að vista ferla :-(

--
Kveðja, Kári.
frá kaos
26.nóv 2017, 20:58
Spjallborð: Almennt spjall
Umræða: Hvað er að gerast í skúrnum?
Svör: 468
Flettingar: 172626

Re: Hvað er að gerast í skúrnum?

Jú það ætti að vera hægt, en ráðfærðu þig samt við rafvirkjann. Sjálfur er ég rafeindavirki (eða smáspennuhommi samkvæmt rafvirkjum :-), en hef unnið töluvert í kringum veiturafmagn. 32amp~360v Getur ekki verið að þetta sé frekar 380V? Þá er þetta 230/400V kerfi, sem hét áður 220/380V þar til viðmið...
frá kaos
26.nóv 2017, 19:59
Spjallborð: Almennt spjall
Umræða: Hvað er að gerast í skúrnum?
Svör: 468
Flettingar: 172626

Re: Hvað er að gerast í skúrnum?

EDIT, jú það sést hérna, bæði 1 og 3ja fasa http://telwin.it/webtelwin/telwinimg.nsf/TelWinImg/954419/$FILE/954419.pdf Hmm, ég sé ekki neina tilvísun í einfasa tengingu. Hvar er talað um hana? Hinsvegar er hægt að víra hana fyrir bæði 230V og 400V. Getur verið að það sé að rugla? Til upplýsingar þá...
frá kaos
23.nóv 2017, 21:42
Spjallborð: Suzuki
Umræða: Grand Vitara - Framdrifs„hökt“
Svör: 4
Flettingar: 10578

Re: Grand Vitara - Framdrifs„hökt“

Það er loft"lás" í framdrifinu sem tengir kambhjólið við mismunadrifið þegar sett er í fjórhjóladrif. Það gæti verið að þetta standi á sér eða sé einhvernveginn brenglað, og sleppi ekki almennilega í afturdrifinu. Ef það þarf að rífa drifköggulinn útaf því myndi ég, útfrá eigin reynslu, mæ...
frá kaos
04.okt 2017, 08:56
Spjallborð: Breytingar, viðhald og viðgerðir
Umræða: Vélarbilun lc 90
Svör: 25
Flettingar: 8609

Re: Vélarbilun lc 90

Það væri þá ekki í fyrsta skiptið :-) Ég kíkti hinsvegar örlítið á Wikipediu, https://en.wikipedia.org/wiki/Octane_rating , og mér sýnist hún vera sammála mér. Hinsvegar getur Wkipedia hæglega haft rangt fyrir sér líka. Þetta passar hinsvegar við þarfir vélanna: Bensínvél blandar eldsneytinu í lofti...
frá kaos
03.okt 2017, 08:55
Spjallborð: Breytingar, viðhald og viðgerðir
Umræða: Vélarbilun lc 90
Svör: 25
Flettingar: 8609

Re: Vélarbilun lc 90

Er ekki vandamálið að dísillinn er með miklu lægri "oktantölu" en bensín? (Já ég veit að dísil er ekki mældur í oktönum, en ef hann væri það.) Þar af leiðandi sé honum hætt við að brenna alltof snemma á þjappslaginu, og valda meiri háttar "neistabanki", sem aftur geti valdið alls...
frá kaos
24.sep 2017, 22:22
Spjallborð: Breytingar, viðhald og viðgerðir
Umræða: Nýtt verkefni Range Rover 1988 í uppgerð.uppfært 30.01.2018
Svör: 38
Flettingar: 12392

Re: Nýtt verkefni Range Rover 1988 í uppgerð.uppfært 23.09.17

Myndi ekki svona "tartan" passa við ekta stórbreskan aristókrata :-)
frá kaos
06.sep 2017, 21:40
Spjallborð: Almennt spjall
Umræða: Range Rover 1988 vantar rafteikningar
Svör: 14
Flettingar: 4613

Re: Range Rover 1988 vantar rafteikningar

En þeir segja að spennan á vírnum segi til um hvað snúningurinn sé mikill. En það finnst mér skrýtið, myndi frekar halda að það sé tíðnin. Sammála því, held að eitthvað hafi skolast til þarna. Spennan getur reyndar eitthvað breyst líka, sem getur útskýrt að þeir virðast hafa fengið einhverja svörun...
frá kaos
06.sep 2017, 21:24
Spjallborð: Almennt spjall
Umræða: Range Rover 1988 vantar rafteikningar
Svör: 14
Flettingar: 4613

Re: Range Rover 1988 vantar rafteikningar

Eftir rafmagnsteikningum sem jongud vísaði einhverntíma á hér á spjallinu. Þær eru reyndar fyrir 1996 árgerð, en litirnir eru a.m.k. þeir sömu: Gulur er hleðsluljós, og myndi því tengjast við brúnan/gulan í bílnum. Hvítur er "sense", og ætti að tengjast beint á geymi. Mætti líka tengjast y...
frá kaos
05.sep 2017, 23:48
Spjallborð: Almennt spjall
Umræða: Range Rover 1988 vantar rafteikningar
Svör: 14
Flettingar: 4613

Re: Range Rover 1988 vantar rafteikningar

Eftir örlítið meira gúgl, held ég að "Multi function unit and binnacle" sé mælaborðið, og vírinn sem því tengist gæti verið fyrir snúningshraðamerki.

--
Kveðja, Kári.
frá kaos
05.sep 2017, 23:30
Spjallborð: Almennt spjall
Umræða: Range Rover 1988 vantar rafteikningar
Svör: 14
Flettingar: 4613

Re: Range Rover 1988 vantar rafteikningar

Hérna er service manual (sem bretinn vill reyndar kalla workshop manual): http://www.landroverresource.com/docs/rangerover/Range_Rover_Manual_1992.pdf Ath. að þótt það sé 1992 í skráarnafninu á hann að dekka 1987 til 1992. Svo rakst ég líka á http://www.landroverweb.com/landrover/ og http://www.land...

Opna nákvæma leit